Lífið

Ætluðu að myrða Stone

Mennirnir ætluðu að myrða söngkonuna.
Mennirnir ætluðu að myrða söngkonuna.
Tveir menn sem ætluðu að ræna söngkonunni Joss Stone og myrða hana hafa verið dæmdir í fangelsi.

Annar þeirra, hinn 35 ára Kevin Liverpool, var dæmdur í lífstíðarfangelsi og losnar ekki út fyrr en eftir að minnsta kosti tíu ár. Ekki verður ákveðið hvað verður um hinn fyrr en niðurstöður geðrannsóknar liggja fyrir.

Mennirnir ætluðu að ræna Stone frá sveitasetri hennar, ræna auðæfum hennar og myrða hana svo. Þeir neituðu ásökununum á hendur sér og sögðust aldrei hafa heyrt söngkonunnar getið fyrr en þeir voru handteknir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.