SA og Viðskiptaráð ekki í eina sæng Viðræður um stofnun nýrra atvinnurekendasamtaka á grunni þeirra eldri runnu út í sandinn fyrir áramót. Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 20. mars 2013 06:00 Grímur Sæmundsen
Viðræður um nánara samstarf Samtaka atvinnulífsins (SA), Viðskiptaráðs og annarra samtaka atvinnurekenda runnu út í sandinn skömmu fyrir áramót. Lauk viðræðunum án niðurstöðu en ekki er útilokað að þær verði hafnar að nýju síðar á þessu ári. „Það fóru fram viðræður á síðasta ári um þá hugmynd að stofna ný atvinnurekendasamtök á grunni þeirra eldri. Hins vegar var ákveðið að láta gott heita í bili en svo verður þráðurinn kannski tekinn upp síðar sjái menn fyrir sér að það geti verið árangursríkt,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, sem var annar fulltrúa SA í viðræðuhóp vegna málsins. Fréttablaðið greindi frá því í maí í fyrra að þreifingar hefðu átt sér stað milli hagsmunasamtaka íslensks atvinnulífs um að taka upp nánara samstarf en tíðkast hefur og ná fram hagræðingu í rekstri hinna margvíslegu samtaka sem fyrirtæki í landinu greiða félagsgjöld í. Fyrst um sinn tóku öll sjö aðildarfélög SA, Viðskiptaráð, Félag atvinnurekenda, Bílgreinasambandið og Kaupmannasamtök Íslands þátt í óformlegum viðræðum um nánara samstarf. Í haust hófust svo formlegar viðræður milli SA og Viðskiptaráðs um að búa til ný samtök á grunni þeirra eldri. Í formlegum viðræðuhópi vegna þessa, sem var kallaður VÍSA-hópurinn, áttu sæti tveir stjórnarmenn í SA; Grímur Sæmundsen og Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka, og tveir stjórnarmenn í Viðskiptaráði; Katrín Olga Jóhannesdóttir, starfandi stjórnarmaður Já, og Eggert B. Guðmundsson, forstjóri N1. Þá tók Margrét Guðmundsdóttir, þáverandi formaður Félags atvinnurekenda, þátt í viðræðunum um tíma. Grímur segir að þótt þátttakendur hafi orðið sammála um að gera hlé á frekari viðræðum séu margir enn áhugasamir um breytingar á atvinnurekendasamtökunum. „Það eru margir áhugasamir um þetta en svo eru auðvitað aðrir sem eru íhaldssamari og sjá ekki endilega kosti þess að stofna ný samtök,“ segir Grímur og bætir við: „Það hafa hins vegar orðið miklar samfélagsbreytingar í landinu á þeim fimmtán árum sem eru liðin frá því að SA var stofnað og markmiðið er að samtökin endurspegli samfélagið,“ segir Grímur. „Okkur þótti líka styrkja þennan málflutning úttekt sem við létum gera á því hvað er verið að setja mikla fjármuni í rekstur atvinnulífssamtaka á Íslandi árlega. Reyndust það vera ríflega 100 milljónir á mánuði. Ég tel því klárlega sóknarfæri til hagræðingar og betri nýtingar fjármuna.“
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira