VÍS, TM og Sjóvá öll á leið í Kauphöllina Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar 20. mars 2013 06:00 Hermann Björnsson
Vátryggingamarkaðurinn á Íslandi tekur breytingum á næstunni þegar TM og VÍS, tvö af þremur stóru tryggingafélögunum, verða skráð í Kauphöllina. Hið þriðja, Sjóvá, stefnir að því sama án þess að sett hafi verið tímasetning á skráninguna. Það er VÍS sem ríður á vaðið en félagið hefur þegar auglýst útboð á að minnsta kosti 60% af hlutafé félagsins sem fara á fram í apríl. Félagið er sem stendur alfarið í eigu Klakka ehf., áður Exista. Klakki hefur lýst yfir að markmiðið með útboðinu sé að stuðla að dreifðu eignarhaldi á VÍS en ekki stendur til að selja einstökum fjárfesti virkan eignarhlut í VÍS. Þá stefnir TM einnig að því að ganga frá skráningu á markað í vor. Fram kom á aðalfundi félagsins í síðustu viku að undirbúningur væri á lokastigi en ríflega þriðjungshlutur Stoða hf., sem áður hét FL Group, í félaginu verður seldur í almennu hlutafjárútboði. Stoðir eru sem stendur stærsti einstaki eigandi TM. Áður var TM alfarið í eigu Stoða en félagið seldi í fyrra um 60% hlut til lífeyrissjóða og annarra stofnanafjárfesta. Verðið í þeim viðskiptum benti til þess að TM væri metið á 11,2 milljarða. Þá seldu Stoðir Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) um 5% hlut fyrir skömmu. Síðasta stóra tryggingafélagið, Sjóvá, ljóstraði því upp á aðalfundi í fyrra að stefnt væri að skráningu félagsins á markað. Síðan hefur lítið heyrst um áformin en Hermann Björnsson forstjóri segir skráningu enn á dagskrá. „Það stendur enn til að skrá Sjóvá á markað. Það er skýr vilji stjórnar og eigenda að stefna að skráningu en það er ekki búið að taka lokaákvörðun um tímasetningu,“ segir Hermann og bætir við að enn liggi ekki fyrir hve stór hlutur í félaginu verði seldur né hvaðan sé hlutur muni koma. Sjóvá er að stærstum hluta í eigu SF1 slhf. sem keypti á árunum 2011 og 2012 73% eignarhlut Eignasafns Seðlabanka Íslands í Sjóvá. Eignarhlutinn mátti rekja til 11,6 milljarða fjárframlags ríkisins til Sjóvár árið 2009. Stærstu eigendur SF1 eru Gildi lífeyrissjóður, SVN eignarhaldsfélag sem er í eigu Síldarvinnslunnar og fagfjárfestasjóðurinn SÍA I undir stjórn Stefnis.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira