Íslandsbanki vill greiða 30% í arð Þórður Snær Júlíusson skrifar 1. mars 2013 07:00 Stjórnendur Íslandsbanka eru ánægðir með uppgjör síðasta árs. Eiginfjárhlutfall bankans er 25,5 prósent og stjórn hans vill greiða út arð.
Stjórn Íslandsbanka vill greiða allt að 30 prósent af hagnaði síðasta árs í arð til eigenda sinna. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi á miðvikudag. Hversu há möguleg arðgreiðsla verður mun verða ákveðið á aðalfundi bankans. Íslandsbanki hagnaðist alls um 23,4 milljarða króna eftir skatta á síðasta ári. Hámarksarðgreiðsla yrði því sjö milljarðar króna. Um 6,7 milljarðar króna af henni myndu renna til þrotabús Glitnis, sem á 95 prósenta hlut í Íslandsbanka, og um 300 milljónir króna til íslenska ríkisins. Íslandsbanki birti uppgjör sitt fyrir árið 2012 í gær. Þar kom fram að hagnaður af reglulegri starfsemi bankans hefði verið 15,7 milljarðar króna, sem er 1,8 milljörðum krónum betri niðurstaða en á árinu 2011. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir að útlán hafi verið mun meiri en árin á undan. Alls hafi um 100 milljarðar króna af „brakandi nýjum lánum" verið lánuð út á árinu 2012. Heildarinnlán bankans lækkuðu hins vegar á milli ára um alls 17 milljarða króna. Að sögn Birnu var það aðallega vegna samdráttar í innlánum fjármálastofnanna. Alls hafa um 20.900 einstaklingar og fyrirtæki fengið 465 milljarða króna afskrifaða, leiðrétta eða gefna eftir með öðrum hætti frá stofnun bankans. Birna segir að allir endurútreikningar lána eigi að klárast á þessu ári.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira