Landsbanki hagnast á styrkingu krónu 25. febrúar 2013 06:00 "Við getum borgað öll innlán í erlendri mynt og eigum þar fyrir utan einhverja tugi milljarða króna,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Landsbankinn á tugmilljarða virði af lausafé í erlendri mynt sem hann verður að eiga til lengri tíma en getur illa lánað út. Þess vegna væri það bankanum í hag ef íslenska krónan styrktist. Þetta segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Landsbankinn hefur þurft að kaupa töluvert magn af gjaldeyri á undanförnum mánuðum til að mæta skilyrtu skuldabréfi sem það skuldar þrotabúi gamla Landsbankans (LBI). Vegna þessa keypti bankinn meðal annars mikið af gjaldeyri um síðustu áramót. Í síðustu viku gekk bankinn svo frá framvirkum samningi við Seðlabankann sem felur í sér að Seðlabankinn kaupir sex milljarða króna í skiptum fyrir evrur. Reglur Seðlabanka Íslands kveða á um að gjaldeyrisjöfnuður banka megi ekki vera meiri en 15 prósent af eigin fé hans. Eigið fé hans var 213 milljarðar króna í lok september síðastliðins. Miðað við þá tölu má Landsbankinn ekki eiga meira en 32 milljarða króna í umframgjaldeyriseignir eða skulda meira en 32 milljarða króna í gjaldeyri umfram eignir í gjaldeyri. Steinþór segir að gjaldeyrisstaða bankans sé enn innan þeirra vikmarka sem Seðlabankinn heimilar. „Við vorum innan þessara vikmarka áður en samningurinn var gerður við Seðlabankann. Þar vorum við að styrkja stöðu okkar. Við búum svo vel að vera með mikið af útflutningsgreinum í viðskiptum hjá okkur. Lausafjárstaða okkar er gríðarlega sterk. Við erum eiginlega með of mikið laust fé í erlendri mynt, vegna þess að það er lítið af verkefnum til að lána í. Það er lítið verið að fjárfesta. Við reiknum með því að staðan verði svona í langan tíma enda þurfum við ekki að vera búnir að lengja í skuldum við gamla bankann fyrr en á árinu 2016." Að sögn Steinþórs er það ekki vegna kaupa Landsbankans á gjaldeyri sem krónan hefur verið að veikjast að undanförnu. „Krónan hreyfðist aðeins í kringum áramótin þegar við vorum að kaupa en hún hefur líka haldið áfram að hreyfast síðan. Það eru aðrir aðilar sem eru að hafa áhrif á það. Aðilar sem hafa þurft að endurfjármagna sig til skamms tíma. Við erum ekki í þeirri stöðu. Í dag er það okkar hagur að krónan styrkist vegna þess að við eigum svo mikið af lausu fé í erlendri mynt. Við getum borgað öll innlán í erlendri mynt og eigum þar fyrir utan einhverja tugi milljarða króna." thordur@frettabladid.is
Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fjölga verslunum í Danaveldinu Neytendur Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira