Upplifanir skipta máli 20. febrúar 2013 06:00 María Lovísa Árnadóttir
Á tímum ótakmarkaðs framboðs, aukinna netsamskipta og mikils áreitis hefur fólk enn takmarkaðri tíma, athygli og áhuga. Sama hvað verið er að selja og hvort sem verið er að höfða til íslenskra eða erlendra viðskiptavina duga hefðbundnar og fjöldaframleiddar markaðshugmyndir ekki lengur til. Til þess að heilla viðskiptavini þurfa þjónustu- og söluaðilar að sýna enn meiri frumleika og skapa einstakar upplifanir sem lifa í hugum fólks um ókomna tíð. Hefur sköpun upplifana aldrei skipt meira máli og í viðskiptaumhverfi samtímans er upplifunin sjálf kjarni markaðssetningar fyrirtækja. Upplifana-hagkerfið ÍslandHagkerfi tuttugustu og fyrstu aldar hefur verið nefnt upplifana-hagkerfið og ver fólk meiri fjármunum en nokkru sinni fyrr í alls kyns upplifanir, hvort heldur sem er ferðalög, skemmtanir, menningarviðburði, matarmenningu, afþreyingu, vörur eða tækni. Það sem fólk velur fram yfir annað byggist á hversu jákvæða og einstaka upplifun viðskiptavinurinn öðlast við val sitt og þau fyrirtæki sem þrífast eiga viðskiptavini sem segja frá upplifun sinni vítt og breitt. Ísland í heild sinni er einn stór upplifana-rekstur sem sést vel á þeim fjölda ferðamanna sem hingað streyma til þess eins að fá að upplifa eitthvað einstakt og eftirminnilegt. Óskert og stórbrotin náttúran er okkar helsta „söluvara" þó svo við séum að bjóða upp á hana gjaldlaust og tekjuöflun tengist umgjörðinni í kringum hana. Íslendingar sjálfir eru þó kjarni verslunar og þjónustu í landinu og erum það við sem mest um það ræðum okkar á milli hvaða upplifun við höfum af hinu og þessu fyrirtæki og auglýsa Íslendingar gjarnan uppáhaldsfyrirtækin sín innan sem utan landsteinanna. Er þitt viðskiptaframboð eftirminnilegt?Auðkenning, ímynd, útlit, umhverfi, vefsíður, merkingar og annað skiptir miklu máli þegar verið er að fanga athygli viðskiptavinarins. Ættu fyrirtæki aldrei að horfa fram hjá mikilvægi þess að nýta vel sjónræna skynjun þar sem hún er það fyrsta sem fólk metur. Sjónræn skynjun er þó aðeins fyrsta þrepið og þar á eftir byggist mat okkar á tilfinningalegri skynjun eða „upplifuninni" í heild sinni og þar skiptir frumleiki og mannlegt viðmót höfuðmáli. Þegar upplifunin staðfestir jákvæða sjónræna skynjun má segja að vel hafi tekist til. Af hverju veljum við eitt veitingahús fram yfir annað, eina prentþjónustu fram yfir aðra, eina vöru fram yfir aðra eða einn banka fram yfir annan? Þegar viðskiptaframboðið er í raun svipað sést glöggt að upplifunin er hin raunverulega söluvara. Hver er upplifun viðskiptavina þinna og hvernig gæti hún orðið enn stórfenglegri? Þegar upp er staðið, hvað ertu í rauninni að selja?
Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Fjölga verslunum í Danaveldinu Neytendur Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira