Hætta á bólumyndun á hlutabréfamarkaði 17. janúar 2013 06:00 Síðasta félagið sem skráð var á markað var Vodafone, en bréf þess voru tekin til viðskipta í desember 2012. Íslandsbanki spáir því að fjögur félög verði skráð á markað í ár. fréttablaðið/gva
Gengi hlutabréfavísitölunnar mun hækka um 14 prósent á árinu 2013, fjögur ný félög verða skráð á markað og töluverð hætta er á verðbólu á hlutabréfamarkaði. Þetta eru helstu niðurstöður í spá greiningardeildar Íslandsbanka sem kynnt var í síðustu viku. Strax í kjölfar kynningarinnar jukust viðskipti á hlutabréfamarkaði umtalsvert. Íslandsbanki hélt morgunverðarfund með fjölmörgum fjárfestum fimmtudaginn 10. janúar síðastliðinn. Þann fund sátu meðal annars valdir einstaklingar ásamt fulltrúum lífeyris- og verðbréfasjóða. Á honum kynnti bankinn afkomuspá sína fyrir íslenskan hlutabréfamarkað árið 2013. Spáin, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, er kirfilega merkt þannig að hún sé ekki ætluð almenningi. Í niðurstöðum Íslandsbanka kemur fram að greining bankans telur að hlutabréfavísitalan muni hækka um fjórtán prósent á árinu 2013. Það er aðeins minni hækkun en á árinu 2012 þegar vísitalan hækkaði um 16,5 prósent. Einstök félög hækkuðu þó meira á því ári. Icelandair hækkaði til dæmis um 63 prósent og Hagar um tæp 40 prósent. Þetta er í andstöðu við þá þróun sem á sér stað í nágrannalöndum okkar þar sem vaxtarmöguleikar hafa víðast hvar dregist saman samhliða minnkandi hagvexti. Í spánni segir að bankinn telji að „spurn eftir innlendum hlutabréfum verði talsverð á árinu. Hrein fjárfestingaþörf lífeyrissjóðanna er áætluð um 128 ma.kr. á árinu 2013. Reikna má með því að stór hluti þess fjármagns leiti inn á hlutabréfamarkaðinn m.a. vegna þess að eign þeirra í innlendum hlutabréfum er enn talsvert undir fjárfestingastefnu sjóðanna. Því til viðbótar er mikið af innlánum sem munu eflaust leita í hlutabréf þegar kostirnir þar verða fleiri“. Kennitölusamanburður Íslandsbanka bendir til þess að Icelandair, Hagar og Eimskip séu þeir fjárfestingarkostir sem helst ætti að fjárfesta í auk þess sem kauptækifæri séu í Regin, sem sé þó langtímafjárfesting. Íslandsbanki telur enn fremur að fjögur félög verði skráð á markað á þessu ári. Þau eru Reitir, TM, N1 og Advania. Bankinn áætlar að samanlagt markaðsvirði eiginfjár þeirra verði á bilinu 39 til 44 milljarðar króna. Til samanburðar má nefna að markaðsvirði Eimskips og Icelandair er hvort um sig tæplega 50 milljarðar króna. Því er stærð þeirra félaga sem búist er við að komi inn á markaðinn tiltölulega hófleg. Í niðurstöðum greiningar Íslandsbanka segir að fjármagnshöftin sem eru við lýði skekki verðmyndun á innlendum hlutabréfamarkaði og öðrum eignamörkuðum. Þau beini fjárfestum sem eiga krónur að innlendum fjárfestingarkostum og þrýsti þar af leiðandi verði þeirra upp. Þá haldi þau vöxtum niðri sem hækkar eignaverð. Í spánni segir að hvort tveggja geti valdið verðbólu á innlendum hlutabréfamarkaði. Kennitölusamanburður á íslenskum og erlendum samanburðarfélögum þykir ekki benda til að bóla sé að myndast á íslenska hlutabréfamarkaðnum enn sem komið er en að „hættan á að slík verðbóla skapist er þó talsverð og vex hættan eftir því sem höftin eru hér lengur“. - þsj / mþl
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira