Mikil eftirspurn í hlutafjárútboði Regins 6. júní 2013 07:07
Mikil eftirspurn var eftir hlutum í hlutafjárútboði Regins í gærdag eða nær tvöfalt framboðið af þeim. Um var að ræða 25% hlut í félaginu og seldist hann á rétt rúmlega fjóra milljarða kr. Í tilkynningu segir að í útboðinu bauð Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf. til sölu 325.000.000 hluti í Regin hf., sem samsvarar 25% af útgefnum hlutum í félaginu. Lágmarksgengi í útboðinu var 12 krónur á hlut og þurftu tilboðsgjafar að lágmarki að bjóða í 2.000.000 hluti. Alls óskuðu fjárfestar eftir að kaupa um 608.454.000 hluti fyrir samtals tæplega 7,6 milljarða kr. Tekið var tilboðum í 325.000.000 hluti og var heildarsöluverðmæti útboðsins rétt rúmlega 4 milljarðar kr. Samþykkt voru tilboð sem voru á bilinu 12,20 – 12,81 krónur á hlut og var vegið meðalgengi samþykktra tilboða 12,52 krónur á hlut. Af samþykktum tilboðum þurfa einungis þeir fjárfestar sem buðu 12,20 krónur á hlut að sæta skerðingu. Öll samþykkt tilboð miðuðust við það gengi sem viðkomandi tilboðsgjafi tilgreindi í tilboði sínu Gjalddagi og eindagi greiðslu vegna útboðsins er klukkan 16:00 þann 10. júní 2013 og verða hlutir í Regin hf. afhentir kaupendum sama dag. Markaðsviðskipti Landsbankans hf. höfðu umsjón með sölu hlutanna. „Í kjölfar hrunsins eignaðist Landsbankinn umtalsvert af stærri fasteignum vegna fjárhagserfiðleika viðskiptavina. Þeim eignum var komið fyrir í fasteignafélaginu Reginn og mikil áhersla var lögð á að losa þær frá bankanum eins hratt og auðið var, en þó með þeim hætti að viðhaft væri opið söluferli,” segir Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans í tilkynningunni. “Skráning Regins á markað fyrir ári og sala á 75% hlut, og nú á þeim hlut sem eftir stóð til fjölda fjárfesta, auk hagstæðrar þróunar á hlutafjárverði félagsins, er allt vísbending um að vel hefur tekist til við þetta verkefni. Með þessu hefur bankinn reynst það hreyfiafl sem hann vill vera og náð því markmiði að stuðla að uppbyggingu hlutabréfamarkaðar á Íslandi sem er mikilvægt fyrir allt efnahagslífið. Landsbankinn óskar nýjum eigendum og félaginu velfarnaðar í framtíðinni.“
Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira