Viðskipti innlent

IFS greining spáir óbreyttum stýrivöxtum

IFS greining telur að Seðlabankinn haldi vöxtum bankans óbreyttum í júní en lítið hefur breyst frá síðasta stýrivaxtafundi þann 15. maí. Gengið hefur haldist stöðugt og verðbólga s.l. tólf mánuði haldist óbreytt milli mánaða og í takti við væntingar Seðlabankans.

Í tilkynningu frá IFS segir að við ákvörðun stýrivaxta verði litið til verðbólguþróun síðustu mánaða ásamt verðbólguhorfum næstu mánaða. "Krónan hefur veikst lítillega frá síðasta fundi eða um 0,1% og verðbólgan er í takti við væntingar SÍ en núverandi vaxtastig veitir nægilegt aðhald að mati nefndarmanna. SÍ spáir minni hagvexti á sátímanum 2013-2015 í Peningamálum 2013/2 en hann gerði í PM 13/1. Spáin gerir ráð fyrir að hagvöxturinn verði um 2,8% að meðaltali á ári á tímabilinu sem er í takt við meðalhagvöxt á Íslandi síðustu þrjátíu ára sem hefur verið um 2,5%," segir í tilkynningunni.

"Á næstu mánuðum gætu efndir kosningaloforða og komandi kjarasamningar leitt til hærri verðbólgu og þrýst á hækkun stýrivaxta. Í síðustu yfirlýsingum og fundargerðum peningastefnunefndar er svipaður tónn í sambandi við þá þætti sem hafa hvað mest áhrif á stýrivaxtaákvarðanir. IFS telur að SÍ haldi vöxtum bankans óbreyttum í júní en lítið hefur breyst frá síðasta stýrivaxtafundi þann 15. maí.

Gengið hefur haldist stöðugt og verðbólga s.l. tólf mánuði haldist óbreytt milli mánaða og í takti við væntingar SÍ. Virkir raunstýrivextir, ef miðað er við 12 mánaða verðbólgu, eru nú um 2,2% en raunstýrivextir m.v. veðlánavexti SÍ eru um 2,8%. Búast má við hækkun raunvaxta í kjölfar hjaðnandi verðbólgu í sumar sem styður við óbreytta vexti og eykur aðhald peningastefnunnar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×