Norska ríkisolíufélagið leitar á Drekasvæðinu Kristján Hjálmarsson skrifar 22. nóvember 2013 15:34 Petoro Iceland AS mun taka þátt í leyfinu ásamt kínverska ríkisolíufélaginu CNOOC International Limited og Eykon Energy ehf. samkvæmt bréfi sem barst Orkustofnun í dag.
Norðmenn hafa ákveðið að Petoro, olíufélag norska ríkisins, verði þátttakandi að fjórðungs hlut í þriðja sérleyfinu til leitar og vinnslu olíu á Drekasvæðinu. Þetta kemur fram á vef Orkustofnunar. Petoro Iceland AS mun taka þátt í leyfinu ásamt kínverska ríkisolíufélaginu CNOOC International Limited og Eykon Energy ehf. samkvæmt bréfi sem barst Orkustofnun í dag. Áður en sérleyfið verður gefið út þarf norska Stórþingið að samþykkja þátttöku norska ríkisins og olíufélags þess, Petoro Iceland AS, í verkefninu. Í kjölfar þess og þegar aðilar sérleyfisins hafa undirritað samstarfssamning um verkefnið mun Orkustofnun gefa út umrætt sérleyfi, væntanlega öðru hvoru megin við áramót. Á vef Orkustofnunar kemur fram að stofnunin hafi í október síðastliðnum lokið umfjöllun sinni um sameiginlega umsókn Eykon Energy ehf. og kínverska ríkisolíufélagsins CNOOC International Limited um sérleyfi fyrir rannsóknir og vinnslu kolvetnis (olíu og gass) á Drekasvæðinu. Með þessari þriðju leyfisveitingu Orkustofnunar er úthlutun leyfa lokið samkvæmt öðru útboði sérleyfa á Drekasvæðinu en umsóknarfrestur var til 2. apríl 2012. Orkustofnun hafði í janúar síðastliðinn veitt annars vegar Faroe Petroleum Norge AS, Íslensku kolvetni ehf. og Petoro Iceland AS og hins vegar Valiant Petroleum ehf., Kolvetni ehf. og Petoro Iceland AS sérleyfi á Drekasvæðinu. Leyfin eru veitt með vísan til ákvæða laga nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, með síðari breytingum, reglugerðar nr. 884/2011, ásamt upplýsingum í sérleyfisumsókn og öðrum upplýsingum frá umsækjendum.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira