Ferðamönnum til landsins fjölgar Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 6. desember 2013 16:54 Um 25,7% aukningu ferðamanna er að ræða milli ára. Mynd/Valli
Um 46 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í nóvember í ár samkvæmt talningum Ferðamálastofu eða um 9.500 fleiri en í nóvember á síðasta ári. Um 25,7% aukningu ferðamanna er að ræða milli ára. Frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2002 hefur árleg aukning í nóvember verið að jafnaði 14,3% milli ára. Sveiflur hafa þó verið miklar í brottförum milli ára.Flestir frá Bretlandi Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í nóvember frá Bretlandi (33,4%) og Bandaríkjunum (15,8%). Þar á eftir komu Norðmenn (6,0%), Þjóðverjar (5,1%), Danir (4,2%), Svíar (4,2%), Kanadamenn (3,7%) og Frakkar (3,6%). Samtals voru þessar átta þjóðir 76% ferðamanna í nóvember. Af einstaka markaðssvæðum fjölgaði Bretum langmest. Þannig komu 5.286 fleiri Bretar í nóvember ár en í fyrra, 1.973 fleiri N-Ameríkanar, 1.310 fleiri ferðamenn frá Mið- og S-Evrópu og 1.412 fleiri frá öðrum markaðssvæðum. Norðurlandabúum fækkaði hins vegar um 480.740 þúsund ferðamenn frá áramótum Frá áramótum hafa 739.328 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 120 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 19,5% milli ára. Um 41% fleiri Bretar hafa heimsótt landið, fjórðungi fleiri N-Ameríkanar, ríflega fjórðungi fleiri frá löndum sem flokkast undir annað og um 14% fleiri Mið- og S-Evrópubúar. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað mun minna eða um 2,4%. Um 29 þúsund Íslendingar fóru utan í nóvember eða um 2.600 fleiri en í fyrra. Frá áramótum hafa um 340 þúsund Íslendingar farið utan eða 3.539 fleiri en í nóvember árið 2012.
Mest lesið Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Atvinnulíf Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent X-ið hans Musk virðist liggja niðri Viðskipti erlent Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Viðskipti innlent Landsbankinn og Arion lækka vexti Neytendur Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Viðskipti erlent Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Viðskipti innlent Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Atvinnulíf Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Af og frá að slakað sé á aðhaldi Ráðinn markaðsstjóri Bónuss Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd Of snemmt að segja til um hvort vaxtalækkunarferlinu sé lokið í bili „Ég held að þú þurfir ný gleraugu“ Úthluta eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta Reitir fasteignafélag og HR efna til hugmyndasamkeppni fyrir nemendur Vaxtalækkunarferlið heldur áfram Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða Tólf milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent