Fjárhagsaðstoð fyrir skuldara við gjaldþrotaskipti Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 6. desember 2013 17:21 Eygló Harðadóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, kynnti frumvarpið fyrir ríkisstjórn. Mynd/Pjetur
Frumvarp til laga um fjárhagsaðstoð til einstaklinga vegna kostnaðar sem fellur til við gjaldþrotaskipti þegar önnur úrræði hafa verið fullreynd var kynnt fyrir ríkisstjórn í dag. Eygló Harðadóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, kynnti frumvarpið en í því er gert ráð fyrir að umboðsmaður skuldara meti skilyrði fyrir slíkri aðstoð og leggi fram tryggingu kostnaðarins fyrir hönd skuldarans.250 þúsund króna trygging Dómarar ákveða nú lágmarkstryggingu við skipti á búum einstaklinga og ber þeim að greiða trygginguna sem óskar eftir gjaldþrotinu. Algengasta tryggingin nemur 250 þúsund krónum en í frumvarpinu er lagt til að fjárhagsaðstoðin verði takmörkuð við þá fjárhæð. Markmið frumvarpsins er að gera þeim einstaklingum sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum og hafa leitað annarra lausna án árangurs, kleift að krefjast gjaldþrotaskipta. Fyrir liggur að kröfuhafar sjá sér ekki alltaf hag í því að krefjast gjaldþrotaskipta telji þeir ljóst að ekkert fáist upp í kröfur. Við þær aðstæður getur verið nauðsynlegt og æskilegast fyrir skuldarann sjálfan að krefjast gjaldþrotaskipta þannig að kröfur á hann fyrnist á tveimur árum líkt og kveðið er á um í lögum um gjaldþrotaskipti í stað þess að fyrnast á fjórum eða tíu árum eftir eðli kröfunnar líkt og gerist ef ekki kemur til gjaldþrotaskipta. Því þykir mikilvægt að veita skuldurum tækifæri til að krefjast gjaldþrotaskipta á búum sínum eigi þeir engra annarra kosta völ. Fjárhagsaðstoðin samkvæmt frumvarpinu byggist á því markmiði.Áætlaður kostnaður 140 milljónir Í kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytisins með frumvarpinu kemur fram að gjaldþrot einstaklinga á árunum 2010-2012 voru 226. Við mat á kostnaði sem hlýst af frumvarpinu er reiknað með að upp hafi safnast þörf á aðstoð við einstaklinga sem ekki hafi getað staðið straum af kostnaði við gjaldþrot. Vegna skilyrða frumvarpsins fyrir rétti til fjárhagsaðstoðar sé hins vegar ekki víst að allir sem krefjast gjaldþrots eigi rétt á slíkri aðstoð og eins er gert ráð fyrir að gjaldþrotum fækki á komandi árum. Áætlaður kostnaður vegna fjárhagsaðstoðarinnar verði frumvarpið að lögum nemur um 140 milljónum króna árið 2014. Til að standa straum af kostnaðinum er miðað við að hækka álagningarhlutfall gjaldskyldra aðila sem greiða kostnað við rekstur umboðsmanns skuldara, en líkt og fram er komið mun umboðsmaður annast framkvæmd fjárhagsaðstoðarinnar. Afkoma ríkissjóðs verður því óbreytt.
Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Fleiri fréttir Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Sjá meira