Auglýsing Sjóvá hlýtur alþjóðleg verðlaun Samúel Karl Ólason skrifar 29. nóvember 2013 17:07 Mynd/Skjáksot úr Auglýsingunni
Auglýsing Sjóvá þar sem kötturinn Jói veldur gífurlegu tjóni á heimili vann í vikunni til alþjóðlegra verðlauna. Auglýsingastofan Hvíta húsið og Saga Film eiga heiðurinn að gerð hennar, samkvæmt tilkynningu. „Um er að ræða bronsverðlaun EPICA sem er ein mikilvægasta og virtasta alþjóðlega samkeppnin á sviði auglýsingagerðar og taka auglýsingastofur víðsvegar að úr heiminum þátt í henni. EPICA hefur þá sérstöðu að í dómnefnd sitja blaðamenn fagblaða um auglýsinga- og markaðsmál frá öllum heimshornum.“ Auglýsingin fékk verðlaun í flokki fjármálaþjónustu, en þar keppa m.a. bankar og tryggingafélög. „Með verðlaununum er Hvíta húsið komið á stall með helstu auglýsingastofum í heimi.“ Í tilkynningunni er fjallað um auglýsinguna og gerð hennar. Auglýsingin fjallar um hversu lífið er ótrúlegt. Í henni er Kötturinn Jói einn heima. Honum leiðist þangað til að hann rekst á hnykil og þá byrjar leikurinn. Þrír af reyndustu starfsmönnum Hvíta hússins, þau Skafti, Begga og Toggi, eiga hugmyndina að auglýsingunni. „Þrátt fyrir að hugmyndin sé einföld og heillandi mátti litlu muna að hún endaði ofan í skúffu vegna efasemda um hvort hún væri framkvæmanleg,“ segir Skafti og Begga útskýrir að þau hafi haft sínar efasemdir um samstarfið við kettina: „Eins og frægt er orðið þá er erfitt að smala köttum og því höfðum við ákveðnar efasemdir. Með útsjónasemi, þolinmæði og trú á gæði hugmyndinnarinnar tókst þó að skila Jóa á sjónvarpsskjái landsmanna og verðlaunum upp í hillu.“ Þau, Skafti Begga og Toggi, segja að Saga Film og leikstjórinn Guðjón Jónsson eigi heiður skilinn fyrir framkvæmdina sem og Ásta Dóra Ingadóttir hjá Gallerí Voff sem er eigandi og þjálfari Jóa og gerði þetta mögulegt. Samstarfið við kettina gekk á endanum vel þrátt fyrir efasemdir í upphafi. „Það er ný og skemmtileg reynsla fyrir okkur að vinna með dýrum á þennan hátt,“ segir Toggi og Skafti bætir því við að reyndar hafi þetta ekki litið vel út í byrjun. „Þegar allir voru komnir á staðinn og tilbúnir að taka upp þá fór Jói, það er að segja kötturinn, í verkfall. Það var allt reynt en hann neitaði alfarið að gera það sem fyrir hann var lagt og því fór þessi fyrsti dagur forgörðum,“ segir hann. Um kvöldið var haldinn krísufundur segir Begga. „Niðurstaða hans var finna fleiri ketti, sem líktust Jóa,“ segir hún og bætir við: „En þegar þeir voru komnir á staðinn tóki Jói við sér og lék hlutverk sitt óaðfinnanlega.“
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira