Smábátahöfnin hjarta verkefnisins Haraldur Guðmundsson skrifar 30. október 2013 00:00 Við smábátahöfnina á Siglufirði standa nú veitingahús, kaffihús, skemmtistaður og gallerí Rauðku. Líftæknifyrirtækið Genís er einnig með aðstöðu þar og nýtt hótel bætist í hópinn vorið 2015. Fréttablaðið/Stefán.
Róbert Guðfinnsson, athafnamaður og Siglfirðingur, á stóran þátt í þeirri mikluu sem nú stendur yfir á Siglufirði í tengslum við ferðaþjónustu, afþreyingu og rannsóknir í líftækni Róbert hefur í gegnum félagið Rauðku ehf. breytt gömlum fiskvinnsluhúsum við smábátahöfnina á Siglufirði í veitingahús, kaffihús, skemmtistað og gallerí. Félagið ætlar einnig að opna nýtt 68 herbergja hótel í bænum og vinnur nú með sveitarfélaginu Fjallabyggð að uppbyggingu níu holu golfvallar. Líftæknifyrirtækið Genís hf.,sem er að mestu í eigu fjárfesta sem tengjast Róberti, er síðan að byggja nýja líftækniverksmiðju í bænum við hliðina á veitingarekstri Rauðku. Fjárfestingar í tengslum við þessi verkefni sem Róbert er aðili að nema að hans sögn meira en þremur milljörðum íslenskra króna.Vildi skapa nýjar tekjur og störf „Þegar umræðan um Héðinsfjarðargöng fór af stað rétt eftir aldamótinsá maður fram á að hlutirnir gætu breyst á Siglufirði en áratugina á undan hafði verið eilíf barátta við að halda fólki í samfélaginu,“ segir Róbert, spurður um hvernig það kom til að hann fór að fjárfesta í ferðaþjónustu og líftækni á Siglufirði. „Ég var á þeim tíma einn af stjórnendum og eigendum sjávarútvegsfyrirtækisins Þormóðs Ramma oghorfði upp á það hvernig tæknivæðing og hagræðing í sjávarútvegi leiddu til fækkunar starfa og einhæfs atvinnulífs. Þá leituðu menn eftir nýjum tækifærum til uppbyggingar og hvernig hægt væri að skapa nýjar tekjur og störf,“ segir Róbert. Hann segir að þessar vangaveltur hafi meðal annars leitt til þess að Þormóður Rammi ákvað að stofna fyrirtækið Primex sem vinnur efnið kítín úr rækjuskel. „Þegar ég lét af störfum og seldi minn hlut í Ramma árið 2005 þá keyptum við félagi minn, Vilhelm Már Guðmundsson, ásamt Nýsköpunarsjóði, rannsóknar- og þróunardeildina út úr Primex. Sú eining heitir í dag Genís hf.“ Í dag starfa fjórir starfsmenn Genís í lítilli þróunarverksmiðju fyrirtækisins á Siglufirði. Áform eru um byggingu stærriverksmiðju á næstu árum. „Við uppbyggingu Genís á Siglufirði mun störfum fyrir háskólamenntað fólk fjölga. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir bæinn því störf í svona samfélögum eiga til að vera einhæf.“Keypti gömul fiskverkunarhús Sex ár eru liðin frá því að Róbert fór fyrst að fjárfesta í verkefnum tengdum ferðaþjónustu á Siglufirði. Þá ákvað hann að kaupa gömul fiskverkunarhús í kringum smábátahöfnina í bænum. „Ég hef lengi unnið að verkefnum erlendis og á ferðum mínum hef ég skoðað mikið af smábátahöfnum sem áður voru gamlar fiskihafnir en var breytt í ferðamannastaði. Því spurði ég sjálfan mig þeirrar spurningar hvort það væri ekki alveg eins hægt að byggja upp slík verkefni á stað eins og Siglufirði. Við ákváðum því strax í byrjun að gera smábátahöfnina í bænum að hjarta verkefnisins,“ segir Róbert. Við norðanverða smábátahöfnina standa nú veitingahús, kaffihús, skemmtistaður og gallerí Rauðku og við austanverða höfnina stendur áðurnefnd verksmiðjaGenís. „Við sunnanverða höfnina ætlum við síðan að byggja 68 herbergja hótel sem verður þrjú þúsund fermetrar að stærð og verður tekið í notkun vorið 2015. Hótelið hefur fengið nafnið Hótel Sunna, til heiðurs gamalli síldarverkunarstöð sem stóð áður á þessum reit,“ segir Róbert og bætir því við að öll hús Rauðku, þar með talið hótelið, séu hönnuð í gömlum stíl til að falla vel inn í umhverfið. Helmingur hótelsins verður að sögn Róbers byggður á landfyllingu. „Það var ekki gert vegna þess að það væri skortur á landi á Siglufirði. Ástæðan er sú að hótelið verður byggt þannig að útsýni verður yfir bátahafnir úr öllum herbergjum þess.Landfyllingin er nú að síga og um leið og hún verður tilbúin, og þegar veður leyfir, þá munum við hefja framkvæmdir við hótelið.“Mikil tækifæri á landsbyggðinni Sveitarfélagið Fjallabyggð og Rauðka stofnuðu á síðasta ári sjálfseignarfélagið Leyningsás sem stendur að uppbyggingu á nýjum níu holu golfvelli og skíðasvæðinu á Siglufirði. „Þessi verkefni eru nauðsynleg til að fá aukna breidd í ferðaþjónustuna og gera þetta samfélag meira aðlaðandi fyrir ungt fólk sem velur Siglufjörð til framtíðarbúsetu. Við sömdum því við sveitarfélagið um að setja eignir skíðasvæðisins inn í sjálfseignarfélag þar sem skíðasvæðið yrði byggt enn frekar upp og byggður yrði nýr níu holu golfvöllur. Þessi verkefni voru sett inn í sjálfseignarfélag því við lögðum félaginu til loforð um 300 milljónir króna og þetta félag er að fullu í eigu samfélagsins,“ segir Róbert. Hann segir það sína skoðun að tækifæri í fjárfestingum í tengslum við ferðaþjónustu á landsbyggðinni hafi ekki fengið verðskuldaða athygli. „Ég tel að fjölgun erlendra ferðamanna sé eitt af stærstu tækifærum landsbyggðarinnar til að ná vopnum sínum aftur. Reykjavíkursvæðið og Gullfoss og Geysir taka ekki við einni og hálfri milljón ferðamanna á ári á næstu tíu árum eins og nýjustu spár gera ráð fyrir. Því mega þessi samfélög úti á landi ekki vera íhaldssöm og blinduð af fortíðarhyggju heldur verða þau að nýtatækifærin og einkafjármagnið verður einnig að skynja þessi tækifæri úti á landi,“ segir Róbert að lokum.Róbert Guðfinnsson segir mikilvægt að fjölga störfum fyrir háskólamenntað fólk á Siglufirði. Fréttablaðið/Arnþór.
Mest lesið Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Samstarf Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Fleiri fréttir Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Sjá meira