Íslenski hesturinn þekktur í þýsku teknó senunni Frosti Logason skrifar 14. nóvember 2013 15:58 Paul Kalkbrenner er mjög sennilega einn allra svalasti danstónlistargaur samtímans.
Paul Kalkbrenner er klárlega eitt stærsta nafnið í evrópsku danstónlistar senunni. Hann er auðvitað best þekktur fyrir sína eigin tónlist en er auk þess vinsæll plötusnúður og leikari. Kalkbrenner mun leggja leið sína til Íslands innan skamms og spilar á Sónar hátíðinni í Reykjavík næstkomandi febrúar. Harmageddon notaði því tækifærið og sló á þráðinn til kappans nú í vikunni. Hægt er að heyra spjallið hér. Kalkbrenner sagðist hlakka mikið til þess að koma til Reykjavíkur en sagðist þó ekki vita mikið um land og þjóð. Það kom þó upp úr kafinu að hann var með eina staðreynd alveg á hreinu. Að íslenski hesturinn er með fleiri gangtegundir en aðrir hestar og nefndi þessi teknó snillingur að sjálfsögðu hið heimsfræga tölt því til staðfestingar. Já það eru ekki bara Björk, Sigur Rós og Of Monsters and Men sem hafa borið út hróður Íslands. Hesturinn á sitt lof skilið líka. Tékkið á löngu vínil útgáfunni af hinu frábæra Sky and Sand lagi Kalkbrenner hér fyrir neðan.
Harmageddon Hestar Mest lesið Ísland í röngu tímabelti Harmageddon Pepsi Max: Kontinuum halda toppsætinu Harmageddon Reykjavíkurdætur frumsýna nýtt myndband á Vísi Harmageddon Segir umhverfisráðherra ekki notast við rök Harmageddon Sannleikurinn: Brynjar Níelsson varpar enn einni sprengjunni Harmageddon 10 ráð til að eiga ánægjulegra kynlíf Harmageddon Er Highway To Hell jólalagið í ár? Harmageddon Aðeins einn frambjóðandi með X 977 húðflúr Harmageddon „Öfgasósíalistar tekið yfir stærstu stéttarfélög landsins“ Harmageddon Átökin verði staðbundin ef til þeirra kemur Harmageddon