Rannsókn lögreglu víkkuð út Óli Kristján Ármannsson skrifar 6. júlí 2013 07:00 Ný stjórn Eirar samþykkti 15. janúar 2013 að kalla eftir rannókn óháðra sérfræðinga á aðdraganda erfiðleika í rekstri og fjárhag stofnunarinnar. Myndin er frá fundi fulltrúaráðs í desember. Fréttablaðið/GVA
Rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Hjúkrunarheimilisins Eirar kann að ná yfir þætti sem nefndir eru í nýrri úttekt Deloitte á málefnum Eirar. Sú úttekt var birt í gær og var unnin að beiðni nýrrar stjórnar heimilisins. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur rannsókn sérstaks saksóknara aukist nokkuð að umfangi frá því að þrír fyrrverandi stjórnarmenn Eirar afhentu embættinu gögn í desember síðastliðnum og óskuðu eftir rannsókn á starfsháttum Eirar. Í vor kallaði embætti sérstaks saksóknara svo eftir frekari gögnum frá nýrri stjórn hjúkrunarheimilisins, meðal annars gögnum sem varða samninga við íbúa. Í skýrslu Deloitte segir meðal annars að meta þurfi hvort stjórnendur Eirar kunni að hafa farið á svig við lög í störfum sínum fyrir stofnunina. Meðal annars er fjallað um greiðslur úr þróunarsjóði á árunum 2009 til 2011.Jón Sigurðsson„Greiðslurnar námu samtals 2,7 milljónum króna og voru vegna dagpeninga, flugferða, gistinga og veitinga erlendis sem tengjast fyrrverandi forstjóra Eirar og fjölskyldumeðlimum hans, fyrrverandi fjármálastjóra Eirar og maka hans, fyrrverandi framkvæmdastjóra rekstrar og fyrrverandi starfsmanni Eirar,“ segir í skýrslunni. Greiðslurnar voru samþykktar ýmist af fyrrverandi forstjóra og/eða framkvæmdastjóra. „Út frá þeim gögnum sem við skoðuðum hefur ekki verið sýnt fram á að greiðslurnar tengist með beinum hætti rekstri Eirar og við teljum því líkur á að um óeðlilegar greiðslur geti verið að ræða.“ Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Eirar frá því í desember síðastliðnum, segir að stjórnin fari nú yfir ábendingar skýrslunnar og kalli eftir svörum og skýringum eftir því sem við eigi. „Ég byrja ekki á því að væna starfsmenn um einhver óheilindi,“ segir Jón. Rétt sé að gefa fólki færi á að gefa skýringar á hlutum sem kunni að vera óljósir. Þá fari lögmaður Eirar einnig yfir skýrsluna og ráðleggi stjórninni um næstu skref. Jón gerir ráð fyrir að málið verði tekið upp á næsta stjórnarfundi Eirar í ágúst. „Nema að eitthvað komi upp í skoðun lögmannsins sem kalli á snarpari viðbrögð. Við boðum þá aukafund ef ástæða er til þess.“Ólafur Þór HaukssonÓlafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segist ekki geta tjáð sig um umfang eða möguleg lok rannsóknar á málefnum Eirar. Á honum má hins vegar skilja að atriði í skýrslu Deloitte þurfi ekki að vera tilefni nýrra kæra til lögreglu. „Ef um er að ræða brot á hegningarlögum er rannsakari, almennt séð, ekki bundinn af kröfugerð. Embættið getur afmarkað rannsókn með því að þrengja hana eða víkka hana út og þarf ekki nýja kæru til þess,“ segir Ólafur og bætir við að algengt sé í rannsókn sakamála, hvort sem það eru efnahagsbrot eða önnur mál, að eitthvað nýtt komi fram þegar að sé gáð. Um hjúkrunarheimilið EirHjúkrunarheimilið Eir er sjálfseignarstofnun, stofnuð í ágústlok 1990 af Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Samtökum blindra og blindravina, Sjómannadeginum í Reykjavík og Hafnarfirði, Sjálfseignarstofnuninni Skjóli, VR og Félagi áhugafólks og aðstandenda Alzheimersjúklinga og annarra sjúkdóma. Árin 2007 til 2011 sátu í stjórn Eirar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (formaður), Magnús L. Sveinsson (varaformaður), Helga Eysteinsdóttir, Haukur Helgason, Tómas Helgason, Vilhjálmur B. Vilhjálmsson og Herdís Sigurjónsdóttir. Sigurður Helgi Guðmundsson var forstjóri frá stofnun Eirar til aprílloka 2011. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var stjórnarformaður Eirar í meira en áratug og sá á þeim tíma um eignaumsýslu stofnunarinnar, eða til júlíloka 2012, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Deloitte. „Vilhjálmur gegndi tímabundið stöðu framkvæmdastjóra á árinu 2011 eftir að Sigurður Helgi lét af störfum.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira