18% lægri laun hjá ríkinu en á almennum markaði Stígur Helgason skrifar 18. september 2013 07:00 Árni Stefán Jónsson
Laun á almennum vinnumarkaði eru um fimmtungi hærri en hjá ríkinu. Þetta kemur fram í tilkynningu um nýja launakönnun SFR, stéttarfélags ríkisstarfsmanna, og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Þar segir að félagsmenn VR séu með tæplega 18 prósentum hærri heildarlaun en félagsmenn SFR sem sinna sambærilegum störfum og 28 prósentum hærri laun en félagsmenn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Þá kemur fram í könnuninni, sem var gerð í febrúar og mars síðastliðnum, að kynbundinn launamunur mælist sjö prósent hjá félagsmönnum SFR en 9,9 prósent hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar. Hjá VR var kynbundinn launamunur 9,4 prósent. Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, segir kröfugerð félagsins fyrir komandi kjarasamninga vera tilbúna og að hún verði borin upp til samþykktar í trúnaðarráðinu á morgun. „Vægi þessa launamunar almenna vinnumarkaðarins og hins opinbera er alltaf að aukast í okkar kröfugerð,“ segir Árni Stefán. „Við munum horfa til þessa og teljum að það þurfi að taka verulega á þessu.“ Að sama skapi segir Árni að horfa verði til launamunar kynjanna í kjaraviðræðunum, þótt hann hafi reyndar mælst minni hjá SFR nú en oft áður. Að síðustu nefnir Árni Stefán að í stað þess að einblína á launahækkanir þurfi einnig að horfa til kaupmáttaraukningar, enda hafi launahækkanir lítið að segja ef atvinnulífið heldur áfram að velta þeim beint út í verðlagið. Þetta verði að vinna í samvinnu við stjórnvöld og atvinnulífið. „Og við munum svo fara fram á að ríkið komi til viðræðna við okkur upp úr miðjum október. Við verðum tilbúin fyrsta október,“ segir Árni. Ekki standi hins vegar til að gera langa samninga, til þess sé óvissan allt of mikil hvað varðar fyrirhugaða hagræðingu í ríkisrekstrinum. „Menn eru ekki að fara að binda sig í kjarasamninga til þriggja ára við svona aðstæður. Það kemur ekki til greina.“
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent