Kemur með tvær milljónir dala til landsins Jón Júlíus Karlsson skrifar 18. september 2013 10:38 Þorsteinn Baldur Friðriksson, stofnandi og forstjóri Plain Vanilla. Mynd/Plain Vanilla
Mikil gróska er í tölvuleikjaiðnaðinum hér á landi. Nýverið kom tölvuleikjaframleiðandinn Plain Vanilla með tvær milljónir dala til landsins í gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands, jafnvirði rúmlega 240 milljóna íslenskra króna. Gjaldeyrisútboðið fór fram 23. júlí sl. en greint var frá niðurstöðu þess nú nýverið. Í október hyggst Plain Vanilla kynna nýjustu afurð sína, samfélagsnet í kringum spurningaleiki sem fyrirtækið hefur verið að þróa fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Spilarar munu geta spilað spurningaleiki og tengst við spilara í sama bæjarfélagi eða hinum megin á hnettinum. Reynslan af fyrri spurningaleikjum sýnir að sterk tengsl myndast á milli sumra spilara og nýi leikurinn mun stórauka möguleika spilara til að tengjast hvor öðrum. Um hundrað þúsund spurningar verða í gagnagrunninum til að byrja með í yfir hundrað flokkum, en um er að ræða stærsta gagnagrunn sinnar tegundar í heiminum. Plain Vanilla verður þriggja ára í nóvember en fyrirtækið hefur stækkað afar hratt að undanförnu. Á hálfu öðru ári hefur starfsmönnum fjölgað úr fjórum í tuttugu og fyrr á árinu settu erlendir fjárfestar 300 milljónir til viðbótar í fyrirtækið. „Það er mjög gott að vera búin að fá þessa fjármuni inn í landið í gegnum gjaldeyrisútboð Seðlabankans,“ segir Ýmir Örn Finnbogason, fjármálastjóri Plain Vanilla. „Við erum nú á lokaspretti þróunar á nýjustu vöru fyrirtækisins, en þróunin fer nær öll fram í höfuðstöðvum okkar hér á landi. Slík þróun er eðli málsins samkvæmt afar kostnaðarsöm enda þarf til hennar mjög sérhæft starfsfólk með mikla þekkingu, sem er sem betur fer töluvert af hér á landi. Einnig hafa útgjöldin verið að aukast vegna fjölgunar starfsfólks og ýmissar annarrar þjónustu sem við kaupum hér á landi.“ Nýverið var ákveðið að setja aukið fjármagn í markaðsstarf hjá fyrirtækinu og í ágúst var ráðinn markaðsstjóri frá Bandaríkjunum, Neal Ostrov, en hann starfaði áður hjá samfélagsmiðlinum Mobli.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent