Viðskipti innlent

Vísitala íbúðaverðs hefur hækkað um 6,8% á ári

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæði var 366,8 stig í ágúst 2013 og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,3%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 4,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×