Kröfuhafar samþykkja endurskipulagningu Skipta 30. apríl 2013 08:56
Kröfuhafar Skipta hf. hafa samþykkt fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Hún felur m.a. í sér lán frá Arion banka upp á 19 milljarða kr. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að fram kom í tilkynningu Skipta hf. dags. 2. apríl 2013 að fyrir lægi tillaga um endurskipulagningu skulda félagsins. Samkvæmt tilkynningunni voru meginatriði tillögunnar svohljóðandi: Í fyrsta lagi, endurgreiðir Skipti hf. hverjum og einum kröfuhafa (miðað við skráða kröfuhafa kl. 16:30 þann 27.mars 2013) tvær milljónir kr. í reiðufé og kemur greiðslan til lækkunar höfuðstóls viðkomandi kröfu. Í öðru lagi að öllum kröfum samkvæmt skuldabréfunum sem skráð eru í kauphöll undir heiti SIMI 06 01 verði breytt eða skipt fyrir hlutafé í Skiptum hf. Í þriðja lagi að öllum kröfum Arion banka hf. sem ekki eru hluti af núverandi forgangsláni félagsins, verði breytt eða skipt fyrir hlutafé í Skiptum. Í fjórða lagi felur tillagan í sér að forgangslán félagsins verði endurfjármagnað að fullu með annars vegar láni frá Arion banka hf. að fjárhæð um kr. 19 milljarðar og hins vegar með útgáfu skuldabréfaflokks að fjárhæð um kr. 8 milljarðar, eða annarri fjármögnun. Er gert ráð fyrir að framangreindar lánveitingar verði tryggðar með fyrsta veðrétti í helstu eignum Skipta hf. og dótturfélögum þess. Helsta skilyrði tillögu félagsins um endurskipulagningu skulda félagsins er að Arion banki hf. og allir eigendur skuldabréfaflokksins SIMI 06 01 gerist aðilar að samningi um endurskipulagninguna eigi síðar en þann 30. apríl 2013. Í kjölfar jákvæðra samskipta við Arion banka hf. og eigendur skuldabréfaflokksins SIMI 06 01 er hér með tilkynnt um að framangreindir aðilar hafa samþykkt að gerast aðilar að samningi um endurskipulagninguna. Þá liggur fyrir lánsloforð til að endurfjármagna forgangslán félagsins. „Með þessu samkomulagi er mjög stórum áfanga náð í endurskipulagningu fjárhags Skipta hf. og hefur félagið nú 2 mánuði til að ganga formlega frá öllum málum því tengt. Skipti hf. geta því horft björtum augum fram á við og haldið áfram öflugri uppbyggingu á fjarskiptainnviðum og fjarskiptakerfum,“ segir Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta í tilkynningunni.
Mest lesið Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent