Landsbréf stofna 8,5 milljarða sjóð 30. apríl 2013 16:07 Hermann Már Þórisson og Steinar Helgason eru framkvæmdastjórar sjóðsins.
Landsbréf hafa lokið fjármögnun á nýjum framtakssjóði, Horni II slhf. Hluthafar eru um 30 talsins og samanstanda af lífeyrissjóðum, fjármálafyrirtækjum og fagfjárfestum, segir í tilkynningu frá sjóðnum. Stærð Horns II er ríflega 8,5 milljarðar króna sem þýðir að félagið hefur mjög mikla fjárfestingagetu og ætti að geta látið mikið að sér kveða í íslensku atvinnulífi næstu árin. Unnið hefur verið að stofnun og fjármögnun Horns II í um sex mánuði. Sjóðurinn mun járfesta í óskráðum félögum með trausta og velþekkta rekstrarsögu og mun sjóðurinn ásamt því að fjárfesta sjálfur í fyrirtækjum, einnig bjóða eigendum sínum að taka beinan þátt í stærri fjárfestingum þegar við á. Landsbréf stofnaði Horn II í október á síðasta ári og er gert ráð fyrir að hluthafar þess félags muni meðal annars njóta forgangs að eignum Horns fjárfestingafélags hf., dótturfélags Landsbankans, en í september á síðasta ári tóku Landsbréf yfir rekstur og stýringu eigna Horns fjárfestingafélags. Áætlað fjárfestingartímabil Horns II er til loka árs 2015 og áætlaður líftími til ársins 2018. Lögð hefur verið sérstök áhersla á skýra útgönguáætlun í fjárfestingum og er meðal annars horft til skráningar þeirra félaga í Kauphöll sem Horn II fjárfestir í. Framkvæmdastjórar Horns II eru þeir Hermann Már Þórisson og Steinar Helgason, en þeir hafa stýrt Horni fjárfestingarfélagi hf. frá árinu 2009. Í fjárfestingaráði Horns II sitja Finnur Reyr Stefánsson, Friðrik Nikulásson, Halldór Kristinsson, Jón Otti Jónsson og Þórður Pálsson. Fjárfestingaráð Horn II mun byrja á að fjárfesta í Hvatningu, stærsta eiganda Bláa lónsins. Önnur verkefni eru mislangt á veg komin en stjórnendur segja ljóst að ekki sé hörgull á verkefnum og þegar hafi mikið verið leitað til félagsins um fjárfestingar.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira