Lítið dregur úr vanskilum fyrirtækja 30. apríl 2013 12:28
Fjöldi og hlutfall fyrirtækja á vanskilaskrá hefur lækkað óverulega sl. mánuði. Nú eru um 6.300 eða um 17% fyrirtækja á vanskilaskrá sem er sambærileg staða og í maí árið 2011. Sömu þróun má sjá ef skoðað er 6 mánaða meðaltal í fjölda og hlutfalli fyrirtækja inn og út af vanskilaskrá. Þetta kemur fram í ritinu Fjármálastöðugleiki sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans. Þar segir að á haustmánuðum árið 2011 var 6 mánaða meðaltal í fjölda og hlutfalli út af vanskilaskrá í fyrsta skipti eftir bankahrun meira en inn á vanskilaskrá. Síðan hafa hreyfingar fyrirtækja inn og út af vanskilaskrá verið nánast í jafnvægi. Þegar fjöldi og hlutfall fyrirtækja á vanskilaskrá er skoðað verður að hafa í huga að um 35.000 fyrirtæki eru skráð á Íslandi í flokkum rekstrarfélaga; sameignarfélaga, samlagsfélaga, samlagshlutafélaga, samvinnufélaga, hlutafélaga og einkahlutafélaga. Líklegt er að lítil starfsemi sé til staðar í sumum þessum félögum, sum þeirra kunna því að vera inni á vanskilaskrá en starfsemi þeirra á sama tíma óveruleg. Þannig kunna að vera takmarkaðir hvatar fyrir eigendur félaganna að koma þeim í skil og af vanskilaskrá. Gjaldþrot og árangurslaus fjárnám náðu hámarki á árinu 2011 þegar gert var árangurslaust fjárnám hjá 6.210 fyrirtækjum og 1.578 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. Á árinu 2012 fækkaði árangurslausum fjárnámum um tæp 25% frá fyrra ári og voru 4.709 og gjaldþrotum fækkaði um tæp 30% og voru 1.112. Sterkar vísbendingar eru um að hægt hafi á þessari þróun. Á fyrstu þremur mánuðum ársins 2013 voru gerð nánast jafn mörg árangurslaus fjárnám hjá fyrirtækjum og á sama tíma árið áður, gjaldþrotum hefur þó fækkað áfram á sama hraða og árið 2012. Gjaldþrotatíðni árið 2011 var hin hæsta í aldarfjórðung, 4,6% fyrirtækja voru tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við að meðaltali 2,4% á árunum 1990-2010. Gjaldþrotatíðni árið 2012 var 3,2%. Þekkt er að rekstrarerfiðleikar og síðar gjaldþrot koma fram með verulegri tímatöf, eins og sjá má af þessari þróun í kjölfar fjármálaáfallsins 2008. Flest bendir til að fjöldi fyrirtækja sem eru á vanskilaskrá, lenda í árangurslausu fjárnámi eða eru tekin til gjaldþrotaskipta muni enn um hríð haldast yfir sögulegum meðaltölum. Helgast það fyrst og fremst af því að þær ógöngur sem mörg fyrirtæki rötuðu í við fjármálaáfallið árið 2008 vegna mikillar skuldsetningar eiga sér engin fordæmi hér á landi.
Mest lesið Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Viðskipti erlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Fleiri fréttir Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Sjá meira