Stærsta afborgun í sögu Orkuveitunnar Helga Arnardóttir skrifar 30. apríl 2013 15:12 Bjarni Bjarnason er forstjóri Orkuveitu Reykjaívkur.
Orkuveita Reykjavíkur fékk í fyrsta sinn frá bankahruni tæplega þriggja milljarða króna lán frá erlendum banka. Forstjórinn segir þessi tíðindi til marks um að endurskipulagning fyrirtækisins sé á réttri leið og bjartari tímar framundan. Rekstur Orkuveitunnar hefur verið í endurskipulagningu frá því seinnihluta árs 2010 og var gerð rekstraráætlun frá mars 2011 til 2016. Rekstur Orkuveitunnar hefur verið þungur frá hruni og var viðbúið að þetta ár yrði það þyngsta í afborgunum. Skuldir orkuveitunnar nema nú um 215 milljörðum króna og verða afborganir fyrirtækisins um 25 milljarðar á þessu ári. Nú eru hins vegar bjartari tímari framundan að sögn Bjarna Bjarnasonar forstjórans, þar sem fyrirtækinu tókst í dag að greiða háa lánaafborgun til belgíska franska bankans Dexia Credit Local. „Í dag vorum við að greiða af erlendu láni um tíu milljarða í einni afborgun. Og þetta er langstærsta staka afborgun af lánum sem við sjáum fyrir. Árið 2013 er langerfiðasta greiðslulánið í áætlun okkar til 2016. Við sjáum núna að við komumst klakklaust í gegnum það og eftir það er mun léttara framundan." En það urðu einnig vatnaskil í rekstri Orkuveitunnar í dag þar sem fyrirtækið fékk í fyrsta skipti frá hruni lán frá erlendum banka. „Það er til marks um það að bankarnir hafa núna trú á rekstri Orkuveitunnar. Það er búið að fara mjög ítarlega í saumana á öllum rekstri hér þessi banki gerði það til að kanna stöðu okkar og framtíðarhorfur. Þeir lána okkur tæpa þrjá milljarða í erlendum gjaldmiðli án þess að krefjast ábyrgðar eiganda á láninu. Þeir taka sem sagt okkar rekstur sem tryggingu fyrir endurgreiðslu." Ekki má greina frá því strax hvaða erlendi banki þetta er en samkvæmt heimildum fréttastofu er það Goldman Sachs. Bjarni segir tvær ástæður fyrir lántökunni. „Við viljum sýna fram á að við getum það að við njótum þess trausts sem til þarf og hins vegar erum við að styrkja lausafjárstöðu. Við eigum ekki nógu mikið laust fé, það væri æskilegt að hafa það hærra. Við ætlum ekki að eyða láninu það er mikilvægt, heldur eiga aðeins betri sjóð til að mæta sveiflum og öðrum minniháttar áföllum í rekstri," segir Bjarni.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira