Kínverjar skrefi nær Drekanum Kristján Már Unnarsson skrifar 13. ágúst 2013 19:05 Norðmenn eiga rétt til 25% þátttöku í leitarleyfum Íslandsmegin á samvinnusvæðinu.
Orkustofnun stefnir að því að úthluta þriðja olíuleitarleyfinu á Drekasvæðið í haust, - til Eykons Energy og kínverska ríkisolíufélagsins CNOOC. Drög að leyfinu hafa nú verið send væntanlegum leyfishöfum til umsagnar og norskum stjórnvöldum verður svo gefinn kostur á þátttöku. Fyrstu tveimur olíuleitarleyfunum í lögsögu Íslands var úthlutað í Ráðherrabústaðnum í byrjun þessa árs, að viðstöddum olíumálaráðherra Noregs. Úthlutun þriðja leyfisins, sem Þórarinn Sveinn Arnarson hjá Orkustofnun segir stefnt að í haust, ef ekkert óvænt gerist, er einnig talin marka tímamót að því leyti að þá mun einn af olíurisum heims í fyrsta sinn verða þátttakandi í olíuleitinni, kínverska ríkisolíufélagið CNOOC. Það félag er hundrað sinnum stærra en öll hin félögin samanlögð sem áður hafa fengið leyfi og hefur burði til að standa eitt að öllum þáttum olíuleitar og vinnslu á hafsvæðum. Það var íslenska félagð Eykon Energy sem fékk Kínverjana til liðs við sig en Eykon er undir forystu þeirra Heiðars Más Guðjónssonar, Gunnlaugs Jónssonar og Norðmannsins Terje Hagevang. Orkustofnun hefur nú lokið við að kanna fjárhagslega og tæknilega getu umsækjenda og hefur sent þeim leyfisdrögin til umsagnar. Geri þeir ekki athugasemd fyrir næstu mánaðamót verður norskum stjórnvöldum boðið að gerast 25 prósent aðilar að leyfinu enda er það á svokölluðu samvinnusvæði Íslands og Noregs á Jan Mayen-hryggnum. Norðmenn hafa síðan einn mánuð til að ákveða hvort þeir verði með en að því búnu verður leyfið formlega gefið út og er líklegt að það verði í október.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira