Greiða 1,7 milljarða í raforkuskatt Haraldur Guðmundsson skrifar 3. október 2013 08:42 Álframleiðendur treysta því að stjórnvöld afnemi skatt vegna raforkukaupa.
Stóriðjufyrirtæki í landinu þurfa samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar að greiða um 1,7 milljarða króna í skatt vegna raforkukaupa á næsta ári. Raforkuskatturinn var upphaflega lagður á með lögum árið 2009 og átti þá að vera til þriggja ára. Hann var síðan framlengdur árið 2012 og samkvæmt nýja fjárlagafrumvarpinu ætlar ríkisstjórnin að láta þá framlengingu standa til ársins 2015. „Í yfirlýsingum fyrir kosningar gáfu núverandi stjórnarflokkar skýrt til kynna að þeir myndu afnema þessa skattheimtu. Við treystum því að það verði gert,“ segir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samál, samtaka álframleiðenda, sem hafa gagnrýnt raforkuskattinn frá árinu 2012. Jón Gunnarsson, alþingismaður og formaður atvinnuveganefndar Alþingis, líkir raforkuskattinum við veiðigjöld í sjávarútvegi. „Í sjávarútveginum er almennur skilningur sá að það sé eðlilegt að greinin greiði aukalega inn í ríkisbúskapinn þegar rekstrarskilyrði eru góð. Rekstrarumhverfi stóriðjufyrirtækjanna hefur að mörgu leyti lagast við þá gengisfellingu sem varð hér eftir hrun, þó staðan á álmörkuðum sé erfiðari en hún var. Við þessar erfiðu aðstæður þurfum við að beita ýtrustu ráðum til að loka fjárlagagatinu og raforkuskatturinn er ein af þeim leiðum.“
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent