Tíu verslanir fá áminningu Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 31. júlí 2013 20:17 Verslunareigendur eiga að hafa verðmerkingar skýrar og vel sýnilegar samkvæmt lögum. mynd/vilhelm
Tíu verslanir í Kringlunni fá áminningu frá Neytendastofu fyrir að vera ekki með verðmerkingar í lagi.Fulltrúar frá Neytendastofu fóru í eftirlitsferð í sérvöruverslanir í Kringlunni fyrr í mánuðinum til að skoða hvort verðmerkingar inni í verslunum sem og í sýningargluggum væru sýnilegar. Verslunareigendur eiga að hafa verðmerkingar skýrar og vel sýnilegar samkvæmt lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og reglur um verðmerkingar og aðrar verðupplýsingar, hvort sem það er inni í verslun eða í sýningarglugga. Flestar þeirra 108 verslana sem farið var í voru með verðmerkingarnar í lagi. Þó voru tíu verslanir sem voru það ekki. Í verslunum Hygeu, Indiska, Kiss, Morrow, Mýrinni, Zik Zak, Ígló og Auganu voru óverðmerktar vörur í sýningargluggum og hjá Blómabúðinni Kringlan, Islandia, Morrow og Hygeu voru vörur óverðmerktar í búðinni. Hygea og Morrow voru einu búðirnar með óverðmerktar vörur bæði í glugga og inni í verslun. Munu verslanirnar fá bréf til áminningar um að laga verðmerkingar í verslunum sínum, eða um 10% þeirra verslana sem skoðaðar voru. Að sögn Neytendastofu er þetta gríðarleg framför frá skoðun sem síðast var gerð mánaðarmót nóvember og desember 2010 þar sem 57 verslanir voru ekki í lagi.
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira