Viðskipti innlent

Landsbankinn opnaði vef um sjávarútveg

Haraldur Guðmundsson skrifar
Bankinn gaf jafnframt út tímarit um sjávarútveg, þar sem fjallað er um umfang greinarinnar í íslensku hagkerfi.
Bankinn gaf jafnframt út tímarit um sjávarútveg, þar sem fjallað er um umfang greinarinnar í íslensku hagkerfi. Mynd/Valli.
Landsbankinn opnaði nýverið vef um sjávarútveg þar sem fjallað er um þróun verðmætasköpunar í greininni.

Vefurinn var að sögn bankans opnaður í tilefni af hinni árlegu Sjávarútvegsráðstefnu sem fór fram dagana 21. og 22. nóvember á Grand hótel í Reykjavík.

Bankinn gaf jafnframt út tímarit um sjávarútveg, þar sem fjallað er um umfang greinarinnar í íslensku hagkerfi og áhersla lögð á hvernig hægt sé að auka enn á verðmætasköpun.

„Birt eru viðtöl við forsvarsmenn fyrirtækja í sjávarútvegi, á sviði útgerðar, tækniþróunar og nýsköpunar. Jafnframt er að finna tvær viðamiklar greinar Hagfræðideildar Landsbankans, annars vegar um nýtingu þorsks úr Atlantshafi og hins vegar er frumbirt spá deildarinnar um rekstrarhorfur útgerðarinnar á næstu árum," segir í tilkynningu bankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×