Skattgreiðendur greiða fyrir 82 af hverjum 100 seldum sætum Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. nóvember 2013 19:45
Rúmlega 82 prósent tekna Sinfóníuhljómsveitar Íslands koma frá ríki og borg sem þýðir að hið opinbera greiðir fyrir 82 af hverjum 100 sætum á tónleikum hljómsveitarinnar. Miðaverð á tónleikum hlypi á tugum þúsunda króna ef ekki nyti við fjárstuðnings hins opinbera. Sinfóníuhljómsveit Íslands er rekin af íslenska ríkinu, sem fer með 82 prósenta hlut og Reykjavíkurborg sem fer með 18 prósenta hlut. Vegna erfiðrar stöðu ríkissjóðs hefur skapast nokkur umræða um stöðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en hið opinbera, þ.e ríkissjóður og Reykjavíkurborg, leggja til samtals tæpan milljarð króna árlega til rekstrar hennar.Reiðir sig á skattfé Samkvæmt ársreikningi Sinfóníunnar fyrir árið 2012 námu heildartekjur hennar hennar 1 milljarði og 93 milljónum króna. Þar af námu framlög rekstraraðila, þ.e ríki og borgar, 901,2 milljónum króna. Miðasala og styrkir námu aðeins 191 milljón krónum samtals. Þetta þýðir að 82,4 prósent af heildartekjum Sinfóníunnar á síðasta ári voru framlög ríkis og borgar og þar er mikill meirihluti framlög frá ríkissjóði. Það má því segja að miðinn á tónleikana með Sinfóníunni sé niðurgreiddur af skattgreiðendum um 82 prósent. Til skýringar má því segja að 82 af hverjum 100 seldum miðum í Eldborgarsalnum á tónleikum Sinfóníunnar eru greiddir af skattgreiðendum.Myndi ekki þrífast án fjárstuðnings hins opinberaEn myndi rekstur Sinfóníunnar þrífast án þessa fjárstuðnings? „Ég held að það sé alveg ljóst að svo væri ekki. Þetta er algjört grundvallaratriði fyrir reksturinn,“ segir Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníunnar. Miðaverð á tónleika Sinfóníunnar eru í nokkrum verðflokkum eftir sætum í Eldborgarsalnum. Ef menn vilja kaupa miða á Vínartónleika Sinfóníunnar sem verða í janúar næstkomandi er verðið á miðanum frá 3.300 krónum og upp í 7.600 kr. sem eru dýrustu sætin. Meðalverð er 5.360 kr. Meðalverð á tónleika Sinfóníunnar væri 29.777 krónur ef ekki nyti við stuðnings skattgreiðenda, samkvæmt útreikningum fréttastofu. Engin önnur hljómsveit á Íslandi nýtur sambærilegs fjárstuðnings.Heldurðu að það sé eftirspurn meðal almennings eftir því að greiða þrjátíu þúsund krónur fyrir miða á sinfóníutónleika? „Nei, miðaverð hefur áhrif á eftirspurnina og við höfum líka haft þá stefnu að hafa það ekki of hátt. Hins vegar er starfsemi hljómsveitarinnar á mjög breiðum grunni. Það eru ekki bara tónleikar því við erum með mjög öflugt fræðslustarf og spilum fyrir 15 - 17 þúsund skólabörn á hverju starfsári. Í fyrra fengum við samtals 70 þúsund gesti þannig að þetta er mjög breiður starfsgrundvöllur,“ segir Arna.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent