Viðskipti innlent

Konur í stjórn Síldarvinnslunnar í fyrsta sinn í 56 ár

Haraldur Guðmundsson skrifar
Konurnar sem kjörnar voru í stjórn og aðalstjórn Síldarvinnslunnar, frá vinstri: Anna Guðmundsdóttir, Björk Þórarinsdóttir og Arna Bryndís Baldvins McClure.
Konurnar sem kjörnar voru í stjórn og aðalstjórn Síldarvinnslunnar, frá vinstri: Anna Guðmundsdóttir, Björk Þórarinsdóttir og Arna Bryndís Baldvins McClure. Mynd/Síldarvinnslan.
Þau tímamót urðu á aðalfundi Síldarvinnslunnar hf., sem haldinn var fimmtudaginn 5. september síðastliðinn, að konur voru í fyrsta sinn kjörnar í stjórn og varastjórn félagsins.

Fram að þessu hafa konur ekki komið að stjórnun félagsins, sem stofnuð var 11. desember 1957.

Þær Anna Guðmundsdóttir og Björk Þórarinsdóttir voru kjörnar í aðalstjórn og Arna Bryndís Baldvins McClure í varastjórn. Að auki sitja í stjórninni þeir Freysteinn Bjarnason, Ingi Jóhann Guðmundsson og Þorsteinn Már Baldvinsson.

Á fundinum var samþykkt að fjölga stjórnarmönnum úr þremur í fimm og eru kynjahlutföllin í nýju stjórninni í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×