Viðskipti innlent

Mesti fjöldi ferðamanna frá upphafi

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Í Leifsstöð
Í Leifsstöð Fréttablaðið/Pjetur
Um 132 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nýliðnum ágústmánuði, samkvæmt því sem kemur fram í nýbirtum tölum Ferðamálastofu.

Eru þetta um 16.500 fleiri ferðamenn en í ágúst í fyrra. „Aukningin nemur 14,4 prósentum milli ára og er þetta metfjöldi ferðamanna í einum mánuði.“

Ef litið er til fjölda ferðamanna í ágúst á því tólf ára tímabili (2002-2013) sem Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum má sjá umtalsverða fjölgun ferðamanna.

„Þannig hefur ferðamönnum fjölgað um 81 þúsund á tímabilinu, farið úr 50 þúsundum árið 2002 í 132 þúsund árið 2013. Aukningin hefur verið að jafnaði 9,3 prósent milli ára en sveiflur hafa hins vegar verið talsvert miklar milli ára,“ segir í umfjöllun Ferðamálastofu.

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í ágúst frá Bandaríkjunum (14,7 prósent), Þýskalandi (14,0 prósent), Frakklandi (9,8 prósent) og Bretlandi (7,7 prósent). Þar á eftir komu Ítalir (4,8 prósent), Norðmenn (4,6 prósent), Spánverjar (4,6 prósent), Danir (4,2 prósent) og Svíar (3,8 prósent). „Samtals voru þessar níu þjóðir um tveir þriðju (68,2 prósent) ferðamanna í ágúst.“

Af einstaka þjóðum er Bandaríkjamönnum, Bretum og Þjóðverjum sagt hafa fjölgað mest milli ára í ágúst. Þannig komu 3.584 fleiri Bandaríkjamenn í ágúst ár, 2.431 fleiri Bretar og 1.824 fleiri Þjóðverjar.

"Þegar aukning er skoðuð eftir einstaka markaðssvæðum milli ára má sjá að Norðurlandabúar standa í stað. 31,2 prósenta aukning er á Bretum, 27,8 prósenta aukning frá löndum sem flokkuð eru undir annað, 18,3 prósenta aukning á N-Ameríkönum og 9,7 prósenta aukning á Mið- og S-Evrópubúum."

Bent er á að Mið- og S-Evrópa sé langstærsta markaðssvæðið í ágúst, eða um 40 prósent af heild, þannig að talið í fjölda ferðamanna sé aukningin mest þaðan.

"Frá áramótum hafa 566.762 erlendir ferðamenn farið frá landinu, um 94 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra," segir Ferðamálastofa, en aukningin nemur fimmtungi á milli ára.

Um 36 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst eða 250 færri en í ágúst í fyrra. „Frá áramótum hafa um 240 þúsund Íslendingar farið utan, um 2.500 færri en á sama tímabili árið 2012. Fækkunin nemur 1,0 prósenti milli ára.“

Finna má nánari upplýsingar um talningu ferðamanna á vef Ferðamálastofu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×