Selt fyrir 4,8 milljarða í N1 Óli Kristján Ármannsson og Samúel Karl Ólason skrifar 11. desember 2013 14:07
280 milljónir hluta fyrir 4.770 milljónir króna voru seldir í almennu útboði hlutabréfa N1 fyrir skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Stefnt er að því að viðskipti með bréfin hefjist í Kauphöll á fimmtudaginn. „Mikil umframeftirspurn var eftir hlutabréfum N1,“ segir í tilkynningu til kauphallar, en útboðinu lauk síðastliðinn mánudag. Alls bárust um 7.700 áskriftir. „Útboðið var tvískipt og verða 18 prósent hluta í félaginu seld á 18,01 krónu á hlut í tilboðsbók B en 10 prósent seld á 15,3 krónur á hlut í tilboðsbók A.“ „Það er stjórnendum og starfsfólki N1 mikið ánægjuefni hversu vel fjárfestar hafa tekið félaginu í tengslum við skráningu þess í Kauphöll. Verður hluthafahópur félagsins einn sá fjölmennasti meðal skráðra félaga og eignarhald þess vel dreift á milli almennings og fagfjárfesta. Fyrir hönd N1 býð ég nýja hluthafa velkomna og hlakka til eiga með þeim farsælt samstarf,“ segir Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, í tilkynningunni. Seljendur í útboðinu voru Framtakssjóður Íslands og Íslandsbanki, sem ákvað að nýta heimild sína til að stækka útboðið úr 25 prósentum hluta í N1 upp í 28 prósent. Aukningunni var ráðstafað í tilboðsbók B. „Í október síðastliðnum nýtti hópur fjárfesta rétt sinn á að kaupa 18 prósenta hlut í félaginu af FSÍ og Íslandsbanka. Þessir tveir aðilar hafa því að útboðinu loknu selt samtals 46 prósent hlutafjár í N1 á fjórða ársfjórðungi 2013,“ segir í tilkynningunni. Íslandsbanki annast framkvæmd útboðsins og mun senda fjárfestum tilkynningu um úthlutun í útboðinu og greiðslufyrirmæli, þegar NASDAQ QMX Iceland hf. staðfestir að hlutabréf N1 verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent