Arðurinn mælist í milljarðatugum Svavar Hávarðsson skrifar 11. desember 2013 10:13 Bláa lónið er eitt þeirra fyrirtækja sem fékk styrk 2005. Önnur þekkt fyrirtæki voru Orf Líftækni, Dohop, Marorka, Marel og Mentor. Mynd/gva
Þau þrettán fyrirtæki sem fengu styrki úr Tækniþróunarsjóði árið 2005 höfðu endurgoldið ríkissjóði framlagið 20 til 40 falt árið 2012. Arðurinn af fjárfestingu ríkissjóðs mælist í tugum milljarða. Þetta sýnir samantekt Samtaka iðnaðarins (SI) um verðmætasköpun og tekjuöflun ríkissjóðs af fyrirtækjum sem hafa notið styrkja til nýsköpunar- og þróunarverkefna. Að gefnu tilefni Tilefni samantektarinnar er fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2014 sem nú er til afgreiðslu á Alþingi. Samkvæmt því lækkar framlag í Tækniþróunarsjóð um tæpar 600 milljónir króna til ársins 2016 frá því sem áður hafði verið boðað. Einnig er boðuð lækkun á endurgreiðsluhlutfalli vegna nýsköpunar- og þróunarverkefna úr 20% í 15%. Með fjáraukalögum ársins 2013 átti einnig að skera Tækniþróunarsjóð niður afturvirkt um 150 milljónir króna.Gremja Á nýafstöðnu Rannsóknaþingi Rannís var þessu, ásamt sambærilegum áformum um niðurskurð á Rannsóknasjóði mótmælt kröftuglega. Gremja vísindasamfélagsins í garð niðurskurðar stjórnvalda til tækni- og vísindasjóða braust fram á sama tíma og fundarmenn lofuðu stefnumörkun til næstu ára. Var sagt að hún væri í raun orðin tóm, af þeim sökum að útilokað sé að framfylgja henni vegna fjársveltis. Eins og Fréttablaðið greindi frá sagði Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, að framlög til rannsókna- og tæknisjóða hafi hækkað árið 2013 vegna fjárfestingaráætlunar fyrri ríkisstjórnar en Alþingi hafi metið stöðuna svo að ríkisreksturinn yrði í jafnvægi eftir hallarekstur síðustu ára. Þetta hafi brugðist og þvert á móti þurfi enn að glíma við að loka fjárlagagati. „Það gerir sér það enginn að leik, eða af misskilningi, að draga úr fjárveitingum til svo mikilvægra málaflokka,“ sagði Illugi. Stefnuyfirlýsingin gleymd? Samtök iðnaðarins benda á að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að hún leggi mikla áherslu á nýsköpun í öllum atvinnugreinum. Boðaðar breytingar á framlögum til vísinda- og tæknisjóða sé því í hrópandi mótsögn við þessa stefnu. Samtökin spyrja hvort einhverja skynsemi sé að finna í tillögum um niðurskurð og svara þeirri spurningu neitandi – ekki sé hún einungis í andstöðu við yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar heldur vanti í tillöguna heilbrigða skynsemi. Verið sé að skera niður bestu og arðbærustu leiðina til að auka verðmætasköpun og skatttekjur ríkissjóðs. Freistandi tilboð Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar hjá SI, segir að umræðan virðist vera að leiða til þess að stjórnarflokkarnir hafi horfið frá umræddum niðurskurði á sjóðunum í fjáraukalögum 2013, en eftir standa áform um niðurskurð á tímabilinu 2014-2016. Einnig sé komin fram tillaga frá meirihluta fjárlaganefndar um að hverfa frá lækkun á endurgreiðsluhlutfalli vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar. „En hins vegar er komin fram tillaga frá meirihlutanum um að þak hámarkskostnaðar til útreiknings á frádrætti verði lækkað,“ segir Davíð.Davíð segir það koma harðar niður á stærri nýsköpunarfyrirtækjum sem nýta heimildina til fulls og þá draga úr hvata þeirra til að stunda rannsókna- og þróunarstarf hér á landi. „Á sama tíma eru löndin allt í kringum okkur að bjóða framsæknustu fyrirtækjunum okkar margvíslega fyrirgreiðslu og hvata ef þau flytja starfsemi sína til þeirra. Bretland freistar margra í þessu sambandi og samkvæmt fjárlagafrumvarpinu í Noregi er verið að hækka umrædd þök þar í landi, en íslenska endurgreiðslukerfið er einmitt sambærilegt því norska.“ 20% gjaldeyristekna Í samantekt SI kemur fram að nú koma um 20% gjaldeyristekna þjóðarinnar frá fyrirtækjum í tækni- og hugverkagreinum. Árangurinn, sem byggist á öflugu rannsókna- og þróunarstarfi undanfarinna ára, komi líka fram í aukinni framleiðni í öðrum útflutningsgreinum, auk þess að leiða til hagræðingar í mennta- og heilbrigðiskerfinu og öðrum greinum á heimamarkaði. Þessu til áherslu er tekið dæmi af þeim þrettán fyrirtækjum sem fengu styrki úr Tækniþróunarsjóði árið 2005 en þá jókst heildarvelta þeirra úr 20 milljörðum 2005 í 118 milljarða á árinu 2012. Starfsmannafjöldinn fór úr nær 500 í um 1.000.
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira