„Ekki rétt að innlendar matvörur hafi hækkað til jafns við innfluttar“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 16. maí 2013 14:18 Samsett mynd/MS „
Það er ekki rétt að innlendar matvörur hafi hækkað til jafns við innfluttar,“ segir Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, í svari sínu við spurningu sem barst inn á vefsíðuna Spyr. Spurt er hvers vegna innlendar matvörur hafi hækkað jafn mikið og innfluttar fyrst allir svari því til að gengi íslensku krónunnar sé sökudólgur verðhækkana. Þá er einnig spurt hvað réttlæti það að kíló af íslenskum osti kosti tæpar tvö þúsund krónur. Einar vísar til skýrslu Samkeppniseftirlitsins frá síðasta ári þar sem fram kemur að innlend matvara hefur hækkað minna en hin svokallaða dagvöruvísitala, en öðru máli gegni með innflutta matvöru. „Mörg aðföng innlendrar matvælaframleiðslu eru keypt erlendis og verð þeirra því háð gengissveiflum. Ég nefni til dæmis kjarnfóður mjólkurkúa, áburð, olíu, vélar og tæki, flutningabíla, umbúðir og íblöndunarefni. Þekkt er samhengi gengis, verðbólgu og þar með launakostnaðar. Þannig er eðlilega ákveðið samhengi gengis og verðlags á innlendum matvörum.“ Mynd/Samkeppniseftirlitið Tíu lítrar af mjólk verða kíló af osti Varðandi ostaverð segir Einar rétt að hafa í huga að smásöluálagning á osti sé frjáls hér á landi en heildsöluverðið á verulegum hluta framleiðslunnar sé ákveðið af verðlagsnefnd búvöru. „Ekki kemur fram hvar ostur kostar tæpar tvö þúsund krónur kílóið. Heildsöluverð á algengustu tegundum af osti er á bilinu um 1.150 krónur til 1.250 krónur og hefur ekki breyst frá því í júlí 2012. Til vinnslu á kílói af osti þarf tíu lítra af mjólk, sem kosta vinnsluna um 810 krónur á hlaðinu hjá bændum. Hún hefur þá 350 til 450 krónur til að safna mjólkinni hjá bændum, gæðaprófa, staðla hana og framleiða ostana, greiða fyrir afskurð, pakka þeim og dreifa til smásöluaðila og greiða markaðs-, sölu- og stjórnunarkostnað.“ Mynd/Samkeppniseftirlitið Mynd/Samkeppniseftirlitið Mynd/Samkeppniseftirlitið Mynd/Samkeppniseftirlitið
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira