Ætla að skrá MP banka á markað á næsta ári 16. maí 2013 09:42
Stefnt er að skráningu MP banka á hlutabréfamarkað á árinu 2014. Þetta kemur fram í tilkynningu um kaup MP banka á Íslenskum verðbréfum hf. sem greint var frá í gærdag. Í tilkynningunni segir að MP banki hafi gert tilboð í allt hlutafé í Íslenskum verðbréfum hf. og hefur tilskilinn meirihluti eigenda félagsins gengið að skilmálum tilboðsins. Kaupverð er greitt með hlutabréfum í MP banka. Sameiginlega verða félögin í hópi þriggja stærstu fyrirtækja á Íslandi á sviði eignastýringar með um 190 milljarða eignir í stýringu. MP sérhæfir sig í að veita íslensku atvinnulífi, athafnafólki, fjárfestum og sparifjáreigendum úrvals bankaþjónustu, auk alhliða þjónustu á sviði fjárfestingabankastarfsemi og eignastýringar. Íslensk verðbréf er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði eignastýringar en eignir í stýringu þess nema um 120 milljörðum. Kaupin eru með fyrirvara um áreiðanleikakannanir og endanlegt samþykki hluthafa og eftirlitsaðila. Rekstur Íslenskra verðbréfa hefur gengið vel. Eigið fé fyrirtækisins nam 453 milljónum króna í lok síðasta árs. Hagnaður fyrir skatta nam 217 milljónum króna. „Ljóst er að kaupin munu styrkja þjónustugrunn félaganna og töluverðir samlegðarmöguleikar felast bæði á tekju- og kostnaðarhlið þessara tveggja fjármálafyrirtækja. Efling starfsemi MP banka á Norðurlandi og sameinað þjónustuframboð mun auka valmöguleika viðskiptavina beggja félaga,“ segir í tilkynningunni. Hluthafar MP banka eru í dag um 50 talsins. Hluthafar í sameinuðu félagi verða á sjöunda tug talsins, þar af 5 lífeyrissjóðir. MP banki verður sem fyrr eini banki landsins sem er að fullu leyti í eigu einkaaðila, svo sem lífeyrissjóða, fyrirtækja og einstaklinga. Eignarhald bankans er dreift og mun enginn hluthafi fara með yfir 10% eignarhlut í bankanum í kjölfar samrunans við Íslensk verðbréf. Hluthafar Íslenskra verðbréfa eru 11 talsins og fá þeir greitt með nýjum hlutum í MP banka. Fimm hluthafar eiga meira en 10% hlut í Íslenskum verðbréfum. Þetta eru Íslandsbanki (27,5%), Íslensk eignastýring ehf. (21,8%), Stapi lífeyrissjóður (15%), Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga (14,5%) og Lífeyrissjóður Vestfirðinga (10,3%).
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira