Dansað fyrir Davíð Olgeirs Ellý Ármanns skrifar 18. apríl 2013 15:15
Davíð Þorsteinn Olgeirsson, 34 ára, var að spila fótbolta 14. febrúar síðastliðinn með félögum sínum í Reykjavík þegar hann fékk bolta í höfuðið sem olli heilablæðingu. Blæðingin hafði áhrif á talstöðvar og hreyfigetu Davíðs og hann lamaðist á hægri hlið líkamans. Nú tveimur mánuðum síðar er Davíð í endurhæfingu á Grensásdeild alla virka daga og fer í helgarfrí heim á Bifröst til fjölskyldu sinnar þar sem þau hafa búsetu. Framundan er löng og ströng endurhæfing og Davíð hefur nú þegar sýnt það að sannað að hann ætlar sér bara eitt og það er að ná fullum bata. Davíð og Tinna eiginkona hans.Davíð starfar sem markaðsstjóri á Bifröst en konan hans, Tinna, er í námi þar. Þau eiga tvö börn, Elmar Daða 4 ára og Gabríelu 12 ára. Davíð var eina fyrirvinna fjölskyldunnar og skyndilega er fótunum kippt undan þeim á einu augabragði. Ótrúleg jákvæðni og gleði einkennir fjölskylduna en róðurinn sem framundan er verður erfiður fyrir þau. Nú ætla allir Zumbakennarar World Class að styrkja fjölskylduna með því að vera með svokallaðan ofur-Zumbatíma á föstudaginn en Ester Júlia Olgeirsdóttir þjálfari og Zumbakennari er systir Davíðs. Tónlistarmaðurinn Bogomil Font mun spila á bongotrommur í tímanum auk þess sem hann tekur þátt í tímanum af lífi og sál og dansar til styrktar Davíðs. Þá verður boðið upp á heilsudrykki og orkustangir og síðan en ekki síst verður dregið í happdrætti. World Class lánar aðstöðuna endurgjaldslaust en kennararnir sem verða fimm gefa allir vinnuna sína. Ofur-Zumba-styrktartíminn verður klukkan 18:00 á föstudaginn næsta, 19 apríl, 100 mínútur að lengd og kostar 2000 krónur inn en upphæðin sem safnast rennur óskipt til Davíðs og fjölskyldu. Hægt verður að skrá sig í tímann hjá World Class en þeir sem vilja styrkja fjölskylduna geta lagt inn á styrktarreikning 0301-13-055783 kt. 281166-4419.
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“