Nú þegar liðinn er þrír fjórðu ársins er athyglivert að rýna í sölutölur fólksbíla á árinu. Selst hafa 6.218 fólksbílar til 30. september. Er þessi sala minni en á sama tíma í fyrra og munar 153 bílum, eða 2,5%. Framan af árinu voru sölutölur hærri en í fyrra, en hægst hefur á sölunni undanfarna mánuði. Í fyrra seldust 7.902 bílar allt árið. Ef gert er ráð fyrir því að á síðustu 3 mánuðum ársins verði salan lík sölunni í september, sem nam 348 bílum, yrði heildarsala ársins aðeins 7.250 bílar, eða um 650 færri en í fyrra. Er það alls ekki í takt við þær spár sem voru um bílasölu í upphafi árs. Flestir áttu von á því að salan myndi aukast aðeins og næði jafnvel uppundir 9.000 bíla sölu. Hætt er við því að það muni ekki ganga eftir.
Hekla með fjórðung
Söluhæsta umboðið er eins og í fyrra Hekla með 1.562 bíla, eða 25,1% sölunnar, en BL hefur selt 1.072 bíla, eða 17,2%. Toyota hefur selt 968 bíla og Lexus 18 að auki, samtals 986 bíla, sem er hlutdeild uppá 15,9%. Fjórða stærsta umboðið er Askja með 618 bíla, eða 9,9%, Brimborg með 585 bíla sölu, eða 9,4%. Bílabúð Benna hefur selt 536 bíla, þar af er sala á Chevrolet bílum 526 og Porsche 10 bílar. Nemur það 8,6% sölunnar. Suzuki hefur selt 448 bíla með sitt eina merki, eða 7,2%. Bernhard hefur selt 304 Honda bíla og 45 Peugeot bíla, samtals 349 bíla, eða 5,6%. Af einstökum bílamerkjum er Toyota söluhæst með 968 bíla. Þar á eftir kemur Volkswagen með 784 bíla og Skoda, sem einnig tilheyrir Heklu með 647 bíla. Í fjórða sætinu er Chevrolet með 526 seldan bíl. Í því fimmta er svo Kia með 493 bíla, sjötta er Suzuki með 448 bíla, sjöunda Honda með 304 bíla, áttunda Nissan með 272 selda bíla. Ford er í níunda sætinu með 250 bíla og næsta sæti á einnig Brimborg með Mazda merkinu og 212 selda bíla. Í ellefta sæti er svo Mercedes Benz með 125 bíla. Er það mest selda lúxusbílamerkið á Íslandi, en í öðru sæti þar kemur Audi með 103 selda bíla, Volvo 60, BMW 58 og Lexus 18.
Kia slær við stærri bróðurnum