Sannleikurinn: "Það er engin hálka í Reykjavík“ Andri Þór Sturluson skrifar 8. október 2013 09:30 Formaður samtaka bílasprautunar og réttingaverkstæða segir alveg öruggt að keyra um á slitnum sumardekkjum. „
Það er engin hálka í Reykjavík. Það er óþarfi að skipta yfir á vetrardekkin strax og ég skil ekki hvað lögreglan og aðrir eru að gera með þessum hræðsluáróðri,“ Þetta segir formaður samtaka bílasprautunar og réttingaverkstæða sem fréttastofa ræddi við nú í morgun. „Það er vel hægt að keyra á sumardekkjum áfram og þetta verður snjólítill vetur. Ef eitthvað er þá er öruggara að keyra á vel notuðum sumardekkjum því þau þekkja veginn.“ Gunnar Ólafsson er formaður samtaka bílsprautunar og réttingarverkstæða. Hann efast um að snjórinn sem nú liggur á götum Reykjavíkur sé raunverulegur. Líklegra telur hann að eigendur dekkjaverkstæða hafi farið um götur borgarinnar með snjóvél í nótt til að selja vetrardekk og fá fólk á dekkjarverkstæðin sín. Hann segir snjóvélar orðnar algengar, mörg skíðasvæði hafa slíkar vélar til að búa til snjó í brekkurnar og snjórinn úti beri öll merki þess að hafa verið framleiddur í slíkum vélum. „Þetta er brella dekkjarverkstæðanna til að auka viðskipti sín. Þessi snjór verður horfinn í fyrramálið og kemur ekki aftur. Brella af svipuðum toga og kjaftæðið um að bil á milli bíla þurfi að vera nægilegt. Langflest tjón á bílum verða þegar bakkað er á annan bíl eða staur. Bil milli bíla skiptir engu máli og allt tal um varkárni skilar engu,“ segir hann. Hvetur hann ökumenn til að láta ekki hræða sig með stanslausum áróðri vegagerðarinnar, veðurstofu og lögreglunnar. Vera bara afslappaðir, keyra bara og nýta dekkin sín.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en hún er lokuð vegna ófærðar.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Halda að fólk myndi virkilega kaupa lélega tónlist og myndir Harmageddon Er fólk sem hnerrar með látum að gera það viljandi? Harmageddon Hinn skrautlegi Nick Oliveri aftur til liðs við Queens of the Stone Age? Harmageddon Segir Þjóðkirkju stuðla að heilaskaða Íslendinga Harmageddon Jón Jónsson segist stefna á Skandinavíu í boltanum og er hættur í tónlist Harmageddon Á kafi í kynlífi Harmageddon Anna Tara ekki lengur á lausu Harmageddon Vill meina að barnaníðingar séu í raun bara hommar Harmageddon Með rokkið í blóðinu Harmageddon Þröstur upp á Heiðar stefna á útgáfu matardisks í kjölfar jólaplötunnar Harmageddon