Íslenskir rokkunnendur ættu að gleðjast en nú hefur verið tilkynnt að gítargoðið Slash verði með tónleika í Laugardalshöllinni þann 6.desember næstkomandi en miðasala hefst á midi.is eftir viku. Vart þarf að kynna Slash fyrir hlustendum X977 enda hefur hann gert garðinn frægan með Guns N‘ Roses, Velvet Revolver og fleirum en þessa daganna er Slash með hugann við sólóferil sinn sem hefur farið vel af stað. Að sjálfsögðu fylgir frábær hljómsveit gítarleikaranum og mun söngvarinn Myles Kennedy syngja með honum hér á landi. Hér að neðan má sjá myndband við lagið World On Fire en myndbandið er þó ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Mikil spenna ríkir í Bretlandi en tvær nýja plötur berjast nú um að ná efsta sæti á breska vinsældarlistanum sem verður kynntur á sunnudaginn. Eins og staðan er í dag er hljómsveitin Alt-J í efsta sæti með plötuna This is All Yours en þar rétt á eftir er Aphex Twin með plötuna Syro. Margt gæti þó breyst á næstu dögum og því verður spennandi að sjá hvort platan endar á toppnum á sunnudaginn.
Hljómsveitin Royal Blood komst á topp Pepsi Max listans í gær með laginu Figure It Out en það mun verða þriðja lag hljómsveitarinnar sem kemst á topp Pepsi Max listans. Eins og alltaf eru það hlustendur X977 sem velja listann og til þess að taka þátt er hægt að skrá sig í Hlustendaráðið inn á heimasíðu X977.