Viðskipti innlent

Toppfiskur ehf. greiði Glitni banka hf. 250 milljónir

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Glitnir banki hf. hafði sigur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Glitnir banki hf. hafði sigur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fyrirtækið Toppfiskur ehf. til að greiða Glitni banka hf. tæplega 250 milljónir ásamt dráttarvöxtum vegna 14 afleiðuskiptasamninga.

Toppfiskur ehf. sem hafði tekjur sínar að mestu í erlendri mynt mun hafa gert samningana til að takmarka gengisáhættu félagsins í rekstrinum. Þann 7. október 2008 tók Fjármálaeftirlitið yfir rekstur Glitnisbanka og skipaði honum skilanefnd, með heimild í neyðarlögunum svokölluðu. Réttindi og skyldur samkvæmt afleiðingusamningum fluttust þó ekki með öðrum eignum yfir í nýja bankann þegar hann var stofnaður.

Taldi Glitnir að Toppfiski bæri að greiða skuld sína við bankann samkvæmt afleiðusamningunum 14. Samningarnir hafi komist á og verið framkvæmdir í samræmi við íslensk lög, samningsskilmála og venjubundna markaðsframkvæmd. Samningarnir séu óuppgerðir og Toppfiskur hafi ekki greitt skuld sína við bankann þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir.

Toppfiskur hélt því fram í sýknukröfu sinni að afleiðusamningarnir væru ógildir. Glitnir hafi brotið gegn ákvæðum laga um verðbréfaviðskipti, reglugerð um fjárfestavernd og viðskiptahætti fjármálafyrirtæki ásamt þeim tilskipunum Evrópusambandsins sem lögin eru byggð á. Þá hélt Toppfiskur því fram að félagið teldist ekki vera fagfjárfestir heldur almennur fjárfestir og því ekki verið hæfur til að gera slíka samninga. Þá byggði Toppfiskur sýknukröfu sína einnig á því að Glitnir hefði vanefnt samninga sína frá og með því tímamarki sem bankinn varð ógjaldfær samkvæmt eigin yfirlýsingum. Þannig væri Toppfiskur óskuldbundinn af þeim samningum sem sem um sé að tefla í málinu. Að síðustu byggði Toppfiskur sýknukröfu sína á því að ósanngjarnt væri og andstætt góðri viðskiptavenju að Glitnir innheimti kröfur sínar á grundvelli gjaldmiðlaskiptasamninga, enda væru forsendur þeirra brostnar. Vísaði Toppfiskur til algers markaðsbrests og vangetu bankans til að efna samningana og byggði á því að samningarnir væru ósanngjarnir vegna atvika sem síðar komu til og því bæri að ógilda þá eða víkja þeim til hliðar að öllu leyti.

Dómurinn féllst ekki á málsástæður Toppfisks ehf. í málinu og dæmdi félagið til að greiða Glitni banka hf. í samræmi við kröfur bankans.

Fyrirsvarsmenn Toppfisks ehf. eru vonsviknir með niðurstöðu héraðsdóms og fremur undrandi. Ákveðið hefur verið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×