Áfrýjunarnefnd staðfestir 500 milljóna sekt á Valitor 8. október 2013 11:24 Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti í gær 500 milljón króna sekt á greiðslukortafyrirtækið Valitor vegna alvarlegra samkeppnislagabrota árin 2007 og 2008. Valitor var sektað í apríl síðastliðnum fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á markaði. Valitor verðlagði þjónustu sína fyrir færsluhirðingu, en það er þjónusta við söluaðila t.d. verslanir, með því að veita þeim heimild til að taka við greiðslum með greiðslukortum, taka við færslum þeirra og greiða þeim út þegar korthafar greiða reikninga sína. Í úrskurðinum segir að með þessari undirverðlagningu hafi félagið verið líklegra til að fá samninga við söluaðila um færsluhirðingu vegna kreditkorta sem talin er arðsamari þjónustu. Var umfang þessarar undirverðlagningar verulegt og brot á 54. gein EES-samningsins. Valitor er markaðsráðandi á þessum markaði og einnig starfa á markaðnum Borgun hf. og Kortaþjónustan. Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins segir að Valitor einnig brotið gegn skilyrðum sem félagið hafi skuldbundið sig til þess að virða samkvæmt sátt sem var gerð árið 2007. Það ár viðurkenndi Valitor viðtæk brot á samkeppnislögum og samþykkti að greiða stjórnvaldssekt sem nam 385 milljónum króna, og að hlíta tveimur skilyrðum sem ætlað var meðal annars að koma í veg fyrir að fyrirtækið myndi á ný misnota markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem ætlað var að valda keppinauti samkeppnislegu tjóni. Valitor kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í apríl til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi, en til vara að sektin yrði felld niður eða lækkuð verulega. Í gær staðfesti áfrýjunarnefndin úrskurð samkeppniseftirlitsins og er það mat nefndarinnar að misnotkun Valitor á markaðsráðandi stöðu sinni og brot á skilyrðunum tveimur séu alvarleg.
Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent