80 herbergja hótel rís í Mývatnssveit Jón Júlíus Karlsson skrifar 8. október 2013 14:34 Alls verður Hótel Laxá um 3000 fermetra að stærð.
80 herbergja hótel verður opnað í landi Arnarvatns í suðurhluta Mývatnssveitar næsta sumar. Hótelið verður þriggja stjörnu og hefur fengið heitið Hótel Laxá. Byggingaframkvæmdir eru hafnar en það eru þeir Vilhjálmur Sigurðsson og Hjálmar Pétursson ásamt meðfjárfesti sem standa að hótelframkvæmdunum. Þeir eru meðal eigenda Avis og Budget bílaleigunnar á Íslandi og hafa yfir 20 ára reynslu af ferðamennsku. Mikill metnaður hefur verið lagður í verkefnið og verður hótelið um 3000 fermetrar að stærð. Margrét Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin hótelstjóri. Hún er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á ferðamál frá Háskólanum á Akureyri, iðnrekstrarfræðingur frá sama skóla og með diploma í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum. Margrét hefur áralanga reynslu af rekstri og ferðaþjónustu. „Markmiðið er að skapa einstaka upplifun fyrir ferðamenn, hvort sem þeir eru innlendir eða erlendir. Við ætlum okkur að veita alhliða þjónustu, þar sem umhverfið fær að njóta sín,“ segir Margrét í tilkynningu.Grænt hótel í sátt við náttúruna „Hugmyndin er að þetta verði ,grænt' hótel þar sem rekstur og framkvæmdir verða í sem mestri sátt við náttúruna. Við teljum að umhverfisstefna fyrirtækja skipti ferðamenn sífellt meira máli og ætlum að leggja mikla áhersla á umhverfismál með það fyrir augum að Hótel Laxá hljóti viðurkenningu sem umhverfisvænt hótel.“ Margrét þekkir vel til ferðaþjónustu í Mývatnssveit en lokaverkefni hennar hjá Háskólanum á Akureyri fjallaði einmitt um þolmörk ferðamannastaða, með áherslu á Mývatnssveit sem er einn fjölsóttasti áfangastaður landsins. Þar hefur yfir háannatímann verið mikill skortur á gistiaðstöðu, en hótelrými eykst um 60% með tilkomu Hótel Laxár næsta sumar. Hótelbyggingin hefur verið fjögur ár í undirbúningi en það er Teiknistofa Pro-ark ásamt Yddu arkitektastofu sem hafa séð um hönnun. Verktakar eru meðal annars Loftorka og MoelvenBygg sem er heimsþekkt norsk einingaverksmiðja, auk margra annarra smærri. Hótel Laxá verður opnað í byrjun sumars árið 2014. Eru bókanir þegar hafnar og lofa góðu að sögn Margrétar.Framkvæmdir við nýtt hótel í Mývatnssveit eru hafnar.Mynd/Hótel LaxáMynd/Hótel Laxá
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira