Viðskipti innlent

Brynhildur nýr framkvæmdarstjóri nýsköpunarfyrirtækisins Marinox

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Brynhildur segir Marinox mjög áhugavert fyrirtækni með mikla möguleika á ýmsum sviðum.
Brynhildur segir Marinox mjög áhugavert fyrirtækni með mikla möguleika á ýmsum sviðum.
Brynhildur Ingvarsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdarstjóri Marinox ehf., framleiðanda UNA skincare húðvörulínunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Brynhildur segir Marinox mjög áhugavert fyrirtækni með mikla möguleika á ýmsum sviðum. Fyrirtækið sé spennandi nýsköpunarfyrirtæki sem byggi á traustum rannsóknum og eldmóði stofnendanna.

Rannsóknir þeirra hafi leitt í ljós að úr einni tegund af sjávarþörungum sem vex við Íslandsstrendur sé hægt að vinna mjög lífvirk efni með mikla andoxunarvirkni. Efnin séu ekki bara eftirsótt sem hráefni í snyrtivörur heldur einnig sem verðmæt fæðubótarefni og íblöndunarefni í matvæli.

Marinox ehf. er ungt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknum, þróun og framleiðslu á lífvirkum efnum úr sjávarþörungum og afurðum sem innihalda slík efni. Fyrsta vörulína fyrirtækisins, UNA skincare húðvörurnar, kom á markað fyrir rúmu ári. Rannsóknar- og þróunarvinna vörulínunnar fór fram í náinni samvinnu við Matís.

Brynhildur lauk MA-prófi í fjölmiðlafræði frá Emerson College í Boston 2002 og BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1995. Hún gegndi síðast starfi markaðsstjóra EGF hjá Sif Cosmetics þar sem hún tók þátt í uppbyggingu fyrirtækisins og vörumerkjanna EGF og BIOEFFECT.

Brynhildur var áður sviðsstjóri miðlunarsviðs Þjóðminjasafns Íslands í aðdraganda uppbyggingar og enduropnunar safnsins árið 2004. Hún er einn af höfundum grunnsýningar safnsins og stýrði miðlunarsviðinu á fyrstu árunum eftir opnunina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×