Kauphöllin stækkar á alla kanta Óli Kristján Ármannsson skrifar 4. desember 2013 07:00 Nasdaq OMX gefur mánaðarlega út viðskiptayfirlit frá kauphöllum sínum á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum. Fréttablaðið/GVA
Hlutabréfavelta jókst um 11 prósent milli október og nóvember í Kauphöll Íslands (Nasdaq OMX Iceland) samkvæmt mánaðarlegu viðskiptayfirliti Kauphallarinnar. Þá hækkaði Úrsvalsvísitalan (OMXI6) um 3,56 prósent. Í lok nóvember voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkað Kauphallarinnar og First North. Heildarmarkaðsvirði þeirra nam 547 milljörðum króna, 48 prósentum yfir virðinu í nóvember í fyrra þegar það var 369 milljarðar. Viðskipti með hlutabréf í nóvember námu 19.952 milljónum eða 950 milljónum á dag, að jafnaði. Í október námu viðskipti með hlutabréf 855 milljónum á dag. „Milli ára er þetta 63 prósenta hækkun,“ segir í tilkynningu Kauphallarinnar, en í nóvember í fyrra námu viðskipti að jafnaði 583 milljónum króna á dag. Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair Group, fyrir rúma 6,2 milljarða króna og bréf Marels fyrir 2,9 milljarða. Þar á eftir komu VÍS með tæplega 2,9 milljarða og TM með tæpa 2,7 milljarða króna. „Viðskipti með skuldabréf námu 169 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 8,1 milljarðs veltu á dag. Þetta er 56 prósenta hækkun frá fyrri mánuði,“ segir í tilkynningu Kauphallar, en í október var skuldabréfavelta á dag 5,2 milljarðar á dag. Veltuaukning milli ára var eitt prósent. Dagvelta í nóvember í fyrra nam átta milljörðum króna.
Mest lesið Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Milljónagreiðslur til Baldvins Jónssonar stöðvaðar Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf „Algjört siðleysi“ Neytendur Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Fleiri fréttir Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Sjá meira