Geta sagt upp ríkisstarfsmönnum í hagræðingarskyni án lagabreytingar Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. júlí 2013 19:03 Gestur Jónsson segir að hagræðing eða skerðing fjárlaga sé málefnaleg ástæða uppsagnar sem rúmist innan gildandi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Forstöðumenn ríkisstofnana geta sagt upp starfsmönnum í hagræðingarskyni án lagabreytingar, en trega gætir hjá ríkinu að segja upp starfsfólki á þessari forsendu. Þessi tregi virðist byggður á misskilningi. Sömu ríkisstofnanirnar fara ítrekað fram úr fjárheimildum, eins og rakið er í skýrslu ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga. Þetta eru Landbúnaðarháskóli Íslands, Hólaskóli, Flensborgarskóli, Sýslumaðurinn í Borgarnesi, Sýslumaðurinn á Selfossi, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum og Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Ríkisendurskoðandi sagði í fréttum okkar í gær að mjög strangar reglur í gildandi starfsmannalögum legðu þungar byrðar á forstöðumenn ríkisstofnana þegar uppsagnir starfsmanna ríkisstofnana væru annars vegar. En fækkun starfsmanna í hagræðingarskyni er talin málefnalega ástæða uppsagnar í íslenskum rétti. Sérfræðingar í stjórnsýslurétti sem fréttastofa hefur rætt við segja að ákveðins misskilnings gæti í stjórnsýslunni þegar komi að uppsögnum ríkisstarfsmanna. Sú mýta hafi skapast að ekki sé hægt að segja ríkisstarfsmönnum upp auðveldlega nema að undangenginni áminningu. Eða að breyta þurfi starfsmannalögum til að liðka fyrir uppsögnum í hagræðingarskyni. Þetta virðist vera útbreiddur misskilningur.Hagræðing vegna skertra fjárheimilda málefnaleg ástæða Dómar hafa fallið í Hæstarétti þar sem uppsögn ríkisstarfsmans hefur verið talin heimil ef hún grundvallast á málefnalegum sjónarmiðum. Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður hefur sinnt verkefnum á sviði starfsmannaréttar í áratugi en hann sagði í samtali við fréttastofu að 43. gr. starfsmannalaga ætti að duga þegar kæmi að uppsögnum ríkisstarfsmanna ef uppsögnin væri í hagræðingarskyni. Sparnaður eða skerðing fjárheimilda væri málefnaleg ástæða uppsagnar ríkisstarfsmanns í þessu samhengi. Að framansögðu virtu ætti að vera hafið yfir vafa að forstöðumenn ríkisstofnanna geta sagt upp starfsmönnum í hagræðingarskyni vegna skertra fjárheimilda að óbreyttum lögum. Þess skal þó getið að skiptar skoðanir eru um ágæti þess að segja upp starfsmönnum í hagræðingarskyni á erfiðleikatímum í ríkisfjármálum. Þannig hafa slíkar uppsagnir haft öfug áhrif t.d í Grikklandi þar sem samdráttur varð í einkaneyslu í kjölfarið með tilheyrandi neikvæðum áhrifum fyrir efnahagslífið þar í landi. Forsætisráðherra vék að þessu í viðtali við fréttastofu á dögunum þegar störf hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar voru til umræðu.Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður er annar tveggja fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar.Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður í hagræðingarhópi ríkisstjórnarinnar, segir að uppsagnir ríkisstarfsmanna séu úrræði sem forstöðumenn stofnana eigi að beita svo lengi sem það valdi ekki skerðingu á lögbundinni þjónustu. Unnur Brá er einn fimm þingmanna hagræðingarhópsins en verkefni hópsins er að finna leiðir til sparnaðar í rekstri ríkisins. Umboð hópsins nær til þess að leggja til fækkkun stöðugilda hjá ríkinu með kerfisbreytingum eins og sameiningu stofnana.Uppsagnir virðast vera einhvers konar tabú Gætt hefur ákveðins trega meðal forstöðumanna stofnana að segja upp starfsfólki. Skemmst er að minnast skýringa sem birtust í skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármálastjórn Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri sem birtist í mars 2012, en þar er stofnunin að gera enn og aftur athugasemdir við framúrkeyrslu skólans. Frá árinu 2005 hefur skólinn aðeins tvisvar sinnum verið rekinn innan árlegra fjárveitinga. Ríkisendurskoðun hefur ítrekað bent á alvarlega fjárhagsstöðu skólans í endurskoðunarbréfum og opinberum skýrslum. Í andmælum forstöðumanns virðast uppsagnir starfsfólks algjört neyðarúrræði sem gripið yrði til til þrautavara. Þetta er hér aðeins tekið sem dæmi.Þarf ekki bara að brýna fyrir forstöðumönnum ríkisstofnana að beita þessu úrræði til að draga úr kostnaði? „Auðvitað er þetta ein af þeim leiðum sem hægt er að fara. Engu að síður þurfa forstöðumenn að átta sig á því að leggja niður fyrir sig hvert verkefnið er sem á að sinna. Í einhverjum tilvikum kann að vera að hægt sé að fara þessa leið, að fækka starfsmönnum. Þá er rétt að skoða hana og fara hana. Í öðrum tilvikum þurfa menn kannski að fara aðrar leiðir. (...) Ef að verkefnunum sem eru lögbundin er ekki sinnt nægilega vel þá er eitthvað að uppbyggingu viðkomandi stofnunar,“ segir Unnur Brá.
Mest lesið Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Breyttur opnunartími hjá Sorpu Neytendur Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Jón Ingi nýr forstjóri PwC Viðskipti innlent Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Samstarf Hægt að spara háar fjárhæðir í jólainnkaupum Neytendur Fleiri fréttir Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Sjá meira