Endurskoðendur segjast hafa varað við viðskiptum Lýðs Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. apríl 2013 13:26 Lýður Guðmundsson, einn aðaleigenda Existu, mætir fyrir dóm. Mynd/ Valli.
Tveir endurskoðendur hjá Deloitte segjast hafa lagst gegn hlutafjáraukningu Exista í lok árs 2008. Frá þessu greindu þeir í skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara þegar málið var til rannsóknar. Lýður Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður Exista, hefur verið ákærður fyrir brot á hlutafélagalögum með því að greiða einungis einn milljarð fyrir hlut í Existu sem var 50 milljarðar að nafnvirði. Þá eru Lýður og Bjarnfreður Ólafsson lögmaður ákærðir fyrir að hafa vísvitandi skýrt rangt og villandi frá hækkun á hlutafé Exista þegar send var tilkynning til hlutafélagaskrár 8. desember 2008. Fyrirtaka var í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og var eitt vitni leitt fyrir dóminn. Það var Hildur Árnadóttir endurskoðandi, sem var meðal annars stjórnarmaður í VÍS, Lýsingu, Bakkavör, Flögu, Lyfju og fleiri félögum. Í máli Hildar í morgun kom fram að hún, sem endurskoðandi í stjórn Existu, hefði átt í samskiptum við Deloitte, sem var endurskoðendafyrirtæki Existu, í aðdraganda stjórnarfundar 4. desember þar sem ákvörðun um hlutafjáraukninguna var tekin. Deloitte var meðal annars fengið til að gera sérfræðingaskýrslu þar sem fjallað var um fyrirhugaða hlutafjáraukningu. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, spurði Hildi hvaða afstöðu Deloitte hefði haft til hlutafjáraukningarinnar. Ólafur vildi meðal annars vita hver afstaða Hilmars Alfreðssonar, endurskoðanda hjá Deloitte sem var endurskoðandi Existu, hefði verið til hlutafjáraukningarinnar. Ólafur las meðal annars upp úr skýrslu sem tekin var af Hilmari á rannsóknarstigi þar sem Hilmar fullyrti að Deloitte „gæti aldrei aldrei skrifað upp á þetta,“ eins og segir í skýrslunni. Þá sagði Ólafur að Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, hefði tekið í svipaðan steng og Hilmar í skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara. Hildur sagðist ekki kannast við þessa afstöðu Deloitte. Hlutafjáraukningin hefði verið rætt fram og til baka við Deloitte áður en hún var rædd í stjórn Existu og Deloitte hefði síðan gert skýrslu sem kölluð var sérfræðingaskýrslan. Hildur segist telja að viðskiptin, þar sem greiddur var einn milljarður fyrir 50 milljarða nafnverðshlut í Kaupþingi, hafi ekki verið óeðlileg. Virði Exista verið mjög lítið eftir að helsta eign félagsins, Kaupþing, var hrunin.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira