Hagnaður MP banka jókst um yfir 400 milljónir milli ára 24. apríl 2013 08:44 Sigurður Atli Jónsson er forstjóri MP banka.
465 milljóna króna hagnaður varð af rekstri MP banka á fyrsta ársfjórðungi ársins eftir skatta samanborið við 22 milljóna króna hagnað á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Hagnaður fyrir tekju- og bankaskatta nam 433 milljónum króna. Í tilkynningu segir að fyrsti ársfjórðungur ársins sé besti ársfjórðungur í rekstri bankans frá upphafi. Góð afkoma var af rekstri og námu hreinar rekstrartekjur 1.105 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi og hafa vaxið um 35% á milli ára. Aukning vaxta- og þóknanatekna nam um 26% á milli ára. Hreinar vaxtatekjur voru 473 milljónir króna og hreinar þóknanatekjur 420 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2013. Hreinar fjárfestingatekjur voru 143 milljónir króna samanborið við 82 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Hlutdeildarfélög skiluðu 14 milljóna króna hagnaði. Um helmingur af afkomu skýrist af endurheimtum af sértækum niðurfærslum en niðurfærslur voru jákvæðar um 221 milljón á fyrsta ársfjórðungi. Heildareignir námu 63 milljörðum króna við lok fyrsta ársfjórðungs. Útlán jukust um 1,8 milljarða og námu alls 29,6 milljörðum króna. Innlán að meðtöldum peningamarkaðsinnlánum námu 47,9 milljörðum króna í lok fyrsta ársfjórðungs. Eiginfjárhlutfall bankans var 12% í lok fyrsta ársfjórðungs. Lögbundið eiginfjárhlutfall er 8% að lágmarki. Allt eigið fé bankans fellur undir eiginfjárþátt A.„Það er afar ánægjulegt að geta skilað góðu uppgjöri í upphafi árs. Það gekk vel að vinna til baka hluta af því sem við höfum fært niður á móti eldra lánasafni, en um helmingur afkomunnar skýrist af því. Reglubundinn rekstur er jafnframt að skila mjög góðri afkomu. Við leggjum um þessar mundir allt kapp á að velja verkefni okkar og viðskiptavini vel og erum ánægð með gæði þess lánasafns sem verið er að byggja upp. Þá hefur okkur tekist vel að halda sterkri stöðu okkar á verðbréfamarkaði,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka í tilkynningunni
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Sjá meira