Góður afgangur af rekstri Kópavogsbæjar 24. apríl 2013 07:44
Rekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar var 186 milljónir króna í fyrra en áætlun gerði ráð fyrir 102 milljónum króna. Útkoman var því betri sem nemur 84 milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar fyrir síðasta ár. Í tilkynningu um uppgjörið segir að tekjur voru rúmlega 20,5 milljarðar króna á árinu en bein rekstrargjöld rúmlega 15,7 milljarðar króna. Þannig var hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir um 4,8 milljarðar króna. Hagnaður vegna lóðaúthlutana á árinu 2012 var tæpar 800 milljónir króna en ekki hafði verið gert ráð fyrir lóðaúthlutunum í áætlun ársins. Til samanburðar var hagnaður af lóðaúthlutunum á árinu 2011 rétt rúmar 335 milljónir króna. „Þessi afgangur verður þrátt fyrir gengistap, óhagstæða verðbólguþróun og hækkun lífeyrisskuldbindinga. Gengistap erlendra lána var 445 milljónir króna og gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga var 209 milljónir umfram áætlun,“ segir í tilkynningunni. „Ársreikningurinn sýnir bætta stöðu Kópavogsbæjar sem gefur góð fyrirheit um framhaldið. Mikill styrkur er fólginn í því að rekstraráætlanir málaflokka skuli standast og að á þær sé hægt að treysta. Hjá Kópavogsbæ starfar hæft fólk sem hefur lagst á árarnar til að ná settu marki. Einnig er mikilvægt að uppgreiðslu erlendra lána lýkur nánast á þessu ári og verður sá áhættuþáttur því óverulegur héðan í frá,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Himneskt ei meir Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Sjá meira