Borgin hyggst setja 170 milljónir í endurnýjun tölvubúnaðar Þorgils Jónsson skrifar 6. nóvember 2013 07:00 Reykjavíkurborg mun setja stóraukið fjármagn í að endurnýja tölvur og tækjabúnað á næsta ári, ef frumvarp til fjárhagsáætlun gengur eftir.
Fjárfesting til endurnýjunar tölvubúnaðar í skólum og frístundamiðstöðvum í Reykjavík verður aukin mikið ef fjárhagsáætlun fyrir næsta ár nær fram að ganga. Þar er gert ráð fyrir því að verja 170 milljónum til kaupa á tækjabúnaði í stað 85 milljóna í ár auk þess sem kapp verður lagt á að bæta gagnatengingu í skólum. Fréttablaðið fjallaði síðasta haust um áhyggjur skólastjórnenda af tölvukostinum sem hafði ekki verið endurnýjaður í fjögur ár og væri hamlandi í starfi skólanna. „Staðan var orðin slæm eftir að búnaðurinn hafði ekki verið endurnýjaður í fjögur ár,“ segir Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, í samtali við Fréttablaðið og bætir við að þetta séu aðallega jákvæðar fréttir fyrir skólaþróun í stóra samhenginu. „En nú stefnum við að því að í lok árs 2016 verði tækjamálin komin í gott horf og þá erum við að miða við að einungis þurfi eðlilega endurnýjun í framhaldinu.“ Oddný bætir því við að borgin hafi einnig tekið upp nýtt vinnulag við innkaup og endurnýjun tækja þar sem kaup eru sniðin að hverri stofnun út frá áherslum í skólastarfi hennar og fjármagni í stað þess að allar stofnanir séu settar undir sama hatt.
Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Sjá meira