Landsbankamenn krafðir um 1,2 milljarða Stígur Helgason skrifar 22. maí 2013 06:00 Sigurjón Þ. Árnason, Yngvi Örn Kristinsson og Steinþór Gunnarsson.
Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt þremur fyrrverandi starfsmönnum bankans til að greiða þrotabúinu samtals 1,2 milljarða króna vegna hlutabréfakaupa árin 2007 og 2008. Starfsmennirnir eru Sigurjón Þ. Árnason, sem var bankastjóri, Steinþór Gunnarsson, sem var forstöðumaður verðbréfamiðlunar, og Yngvi Örn Kristinsson, sem var framkvæmdastjóri verðbréfasviðs og ráðgjafi Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra eftir hrun. Málið snýst um fimm viðskipti Landsbankans með hlutabréf í bankanum sjálfum, Straumi og Eimskipum, á tímabilinu frá 7. nóvember 2007 til 25. júlí 2008. Alls voru bréf keypt fyrir 1,2 milljarða. Slitastjórnin byggir á því að þremenningunum hafi átt að vera ljóst allan þennan tíma að verulega væri farið að halla undan fæti í efnahagslífinu og að kaupin væru ekki skynsamleg. Þau hafi auk þess verið ólögleg, farið yfir lögbundin mörk um hámarkseign í eigin bréfum og tilteknum félögum, verið í eigu bankans of lengi og engin tilraun gerð til að selja þau. Þetta hafi verið saknæmt og þeir því bótaskyldir. Þeir mótmæla kröfunni. Í greinargerð Sigurjóns segir að viðskiptin hafi alls ekki verið saknæm, þótt bréfin hafi rýrnað að virði eða orðið verðlaus löngu síðar.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira