Loðnukvótinn aukinn um 120 þúsund tonn JHH skrifar 11. febrúar 2013 20:33 Rannsóknarskipið Árni Friðriksson. Mynd/ GVA.
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra hefur á grundvelli tillagna Hafrannsóknarstofnunar ákveðið að heimila veiðar á 120 þúsund tonnum af loðnu í viðbót við áður útgefnar aflaheimildir. Frá 21. janúar til 7. febrúar var rannsóknaskipið Árni Friðriksson við rannsóknir og mælingar á stærð loðnustofnsins frá miðjum Austfjörðum, norður um og allt að Norðvesturmiðum. Útreikningar á stærð veiðistofnsins sem byggja á þessum mælingum sýna að alls mældust 873 þúsund tonn af kynþroska loðnu. Að viðbættum afla ársins fram að mælingum og náttúrulegum afföllum er áætlað að stærð veiðistofnsins þann 1. janúar hafi verið um 990 þúsund tonn. Áður en mælingar hófust þann 22. janúar var búið að veiða um 100 þúsund tonn á vertíðinni 2012/2013. Í ljósi gildandi aflareglu um að skilja 400 þúsund tonn eftir til hrygningar og á grundvelli ofangreindra mælinga í janúar - febrúar 2013, leggur Hafrannsóknastofnun til að leyfilegur hámarksafli á vertíðinni 2012/2013 verði ákveðinn 570 þúsund tonn, að meðtöldum þeim afla sem búið var að veiða þegar mælingar fóru fram. Er það 120 þúsund tonna viðbót við þá ráðgjöf sem gefin var þann 6. febrúar síðastliðinn.
Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira